Hröð framþróun rafrænna undirritana heldur áfram
Með rafrænum undirritunum sparast að lágmarki um 30 mínútna vinna í tengslum við hvert skjal.
Með rafrænum undirritunum sparast að lágmarki um 30 mínútna vinna í tengslum við hvert skjal.
Á Signet.is geta notendur skráð sig inn með rafrænum skilríkjum og sent skjöl í undirritun. Móttakendur fá sendan tengil á skjalið sem þeir smella á og geta þá skoðað og undirritað viðkomandi skjal. Signet web er þægileg leið sem þarfnast engrar uppsetningar hjá notendum.
Þessi veflausn gerir teymum innan fyrirtækja kleift að vinna með skjöl sem send eru til undirritunar. Forráðamaður nýtir umboðskerfi Ísland.is til að stilla upp eigin teymum í Signet. Allir í teyminu geta sent skjöl til undirritunar, skoða skjöl teymisins og unnið með þau sameiginlega. Hægt er að tengja Signet team við vefþjónustu þannig að skjöl úr Signet team streymi sjálfkrafa inn í skjalavistunarkerfi viðkomandi fyrirtækis eða stofnunar.
Fyrirtæki og stofnanir geta nýtt vefþjónustuskil (API) til að samþætta eigin kerfi við Signet. Þannig geta notendur sent skjöl í undirritun beint úr eigin kerfum. Að undirritun lokinni má láta skjölin streyma sjálfkrafa til baka þar sem þau eru vistuð í viðeigandi skjalavistunarkerfi. Hægt er að nýta vefþjónustuskilin til að fylgjast með stöðu skjala í undirritunarferlinu, senda áminningar, eyða skjölum úr Signet ofl. Signet Cloud býður upp á undirritanir fyrir bæði XML og PDF skjöl.
Kjarnavefþjónusta Signet býður upp á mikla möguleika en krefst meiri aðlögunar en Signet Cloud. Signet Cloud er eins konar hjúpun á Signet core til að einfalda þróun á móti Signet. Signet core hentar fyrirtækjum sem vilja tengja Signet við innri kerfi fyrirtækisins og búa yfir töluverðri þekkingu á rafrænum undirritunum.
Lausn fyrir vefsvæði með eyðublöð eða skjöl sem þarfnast undirritunar. Lausnin býður upp á mikla samþættingarmöguleika milli Signet og viðkomandi vefsvæðis. Notandinn upplifir Signet undirritunina sem hluta af ferli viðkomandi vefs. Uppsetning er mjög fljótleg, þar sem Signet forms þjónustan býður upp á að taka á móti núverandi eyðublöðum og breyta þeim yfir á gagnvirkt form þannig að hægt sé fylla þau út og undirrita rafrænt í Signet. Að undirritun lokinni má nota vefþjónustu eða Signet team til að skila til baka undirritaða eyðublaðinu ásamt viðeigandi gögnum á XML formi.
Hentar t.d. fyrir afgreiðslufulltrúa, sölumenn, fundi eða önnur tilfelli þar sem gengið er frá undirritun á staðnum. Skjalið sem á að undirrita er á skjá þar sem aðilar geta skoðað það. Þegar aðilar eru sáttir, undirrita þeir skjalið á staðnum. Einnig má senda boð á aðila sem ekki gátu verið á staðnum þannig að þeir geti einnig skoðað og undirritað skjalið.
Þessi lausn er fyrir fyrir vélrænar undirritanir skjala. Fyrirtæki eða stofnun sendir PDF skjal ásamt upplýsingum um móttakanda og texta í vefþjónustulag Signet. Signet móttekur skjalið og innsiglar með rafrænni undirritun sendanda. Ef þess er óskað getur Signet sent skjalið í tölvupósti á móttakandann. Dæmi um þetta er innsiglun rafrænna reikninga en ekki má móttaka rafræna reikninga í bókhald nema upprunavottun skjalsins sé tryggð.
Nýjasta varan í Signet Suite er ætluð til að senda trúnaðarskjöl með öruggum hætti á milli aðila. Til að senda skjal er farið á transfer.signet.is þar sem notandinn auðkennir sig með rafrænum skilríkjum. Hann velur móttakendur og hleður inn skjölum sem á að senda. Móttakendur fá þá boð með tengli sem vísar á trúnaðarskjölin í Signet transfer. Til að geta sótt skjölin þarf móttakandinn að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum. Um leið og móttakandi hefur fengið skjalið er því eytt úr Signet transfer.
Signet notary er vara sem bíður eftir að Alþingi samþykki breytingar á lögum sem munu heimila rafrænar þinglýsingar, en vonast er til að Alþingi muni heimila þær síðar á þessu ári. Þannig mun Signet styðja undirritanir á rafrænum þinglýsingarbeiðnum þegar heimilt verður að senda slíkar beiðnir inn.
Signet er mjög sveiganlegt kerfi sem er sérsniðið að íslenskum aðstæðum. Viðskiptavinir geta annað hvort nýtt sér Signet eitt og sér á vefnum eða samþætt við þá ferla sem eru í gangi. Þannig verður innleiðing rafrænna undirritana mun ódýrari og ekki þarf að gera stórvægilegar breytingar á núverandi ferlum. Með notkun á Signet geta fyrirtæki og stofnanir lækkað kostnað, aukið öryggi í rafrænum samskiptum og bætt verulega þjónustu við neytendur og almenning í íslensku samfélagi.
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.