Landakort fyrir spjaldtölvur og snjallsíma
Ískort er lítið sprotafyrirtæki sem hefur það að markmiðið að útbúa landakort úr stafrænum landupplýsingum.
Ískort er lítið sprotafyrirtæki sem hefur það að markmiðið að útbúa landakort úr stafrænum landupplýsingum.
Kortagerðin felst í því að notaður er landfræðilegur gagnagrunnur Landmælinga Íslands IS-50V. Í honum er meðal annars hæðarlíkan, hæðarlínur, mannvirki ,örnefni , samgöngur, strandlína, vatnafar og yfirborð. Í kortagerðinni er einnig notað mjög nákvæmt hæðarlíkan af jöklum landsins, en líkanið er unnið af Veðurstofu Íslands og Raunvísindastofnun Háskóla Íslands. Þess til viðbótar er mikið safn gönguleiða og upplýsinga um staðsetningu skýli og skála.
Þegar gögnin eru lesin inn úr gagnagrunni, þá opnast þau öll sem flöt línugögn. Öll gögn líta eins út og ómögulegt er að aðgreina alla þætti þeirra sem opnuð eru.
Útkoman, eftir að búið er að útbúa litakort og ákveða forgang og framsetningu þeirra gagna sem er notað, er heildstætt landakort. Kortið er þá með útliti og áferð sem auðvelt er að lesa og skynja hvernig landið liggur. Einnig er auðvelt að sjá hvar vegir og aðrir manngerðir hlutir eru á kortinu.
Hæðarlíkan Landmælinga Íslands sem þekur allt landið í einni heild, er notað sem grunnur.
Hæðarlíkan frá Veðurstofu Íslands og Raunvísindastofnun HÍ, en í þeim gögnum er landlíkan unnið upp eftir Lidar (Laser) mælingum með upplausn upp á 2.5 metra, af jöklum landsins og þeirra næsta nágrenni. Hæðarlíkaninu er bætt ofan á grunnlíkanið frá Landmælingum.
Vinnslan við kortagerðina er margþætt og gagnamagn henni tengdri er mikil. Gögnum er raðað upp í ákveðinn forgang, úr þeim unnið lag, sem notað er áfram sem undirlag í næsta þrepi vinnslunnar. Þannig er kortið byggt upp koll af kolli, og á endanum er tilbúið landakort sem er útbúið fyrir vefkerfi PDF-Maps.
Litakort, unnið eftir upplýsingum um gróðurfar og yfirborð. Þar eru nokkrir tugir gerða yfirborðs raðað saman og leitast er við að litir séu að sama skapi endurspeglun á náttúrulegum litum, en einnig til nánari aðgreiningar á milli gróðurtegunda.
Náttúrulegt yfirborð og manngert yfirborð er unnið til með mismunandi hætti, þar sem aðgreining á hálendi, mosum og melum rennur meira saman en aðgreining á manngerðu gróðurfari svo sem skógrækt eða tún. Gögnum með vatnafari er einnig bætt ofan á þekjuna.
Grunnkortinu sem áður var útbúið, er varpað ofan á þrívíddarlíkan og við það koma fram skuggar í landslagið, en þeir auðvelda lestur á kortinu og gera notendanum kleift að sjá hvernig landið liggur.
Að lokum er línugögnum varpað yfir landlíkanið, en í þeim eru t.d upplýsingar um vegi, örnefni, býli og önnur mannvirki.
Mesta vinnan fer í útlitshönnun sem hefur það að markmiði að kortið sé skýrt og auðvelt til notkunar við leiðsögn.
Helstu atriði sem þarf að hanna útlit á eru:
Í kortunum er gríðarlega nákvæmt hæðarlíkan af jöklum landsins. Gögnin koma að notkun við gerð sprungukorta og þau gefa einnig góða mynd af yfirborði jökla og nágrenni þeirra. Landlíkan unnið upp eftir Lidar (Laser) og litakorti er svo varpað yfir líkanið. Við það koma sprungur í jöklinum fram og hægt að sjá á kortinu sprungur og hættusvæði.
Með frekari úrvinnslu á hæðarlíkani, er hægt að kalla fram hættusvæði með sjálfvirkum hætti, þar sem yfirborðshalli ákveður styrk fyrst guls og svo rauðs litar. Rauðu svæðin eru því mjög hættuleg, og þau gulu varasöm. Kort sem þetta auðveldar gríðarlega ákvörðun um leiðarval og mat á aðstæðum.
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.