Akademia fyrir tæknistelpur
Uppbygging á tækniakademíu fyrir stelpur er eitt af meginmarkmiðum samstarfs Advania og Skema.
Uppbygging á tækniakademíu fyrir stelpur er eitt af meginmarkmiðum samstarfs Advania og Skema.
Uppbygging á tækniakademíu fyrir stelpur er eitt af meginmarkmiðum samstarfssamnings milli Advania og menntunar- og tölvuþróunarfyrirtækisins Skema sem undirritaður var á dögunum. Tilgangur akademíunnar er að vekja áhuga stúlkna á forritun og hvetja þær til frekara náms í tölvunarfræðum.
Með því að hefjast handa snemma og helst fyrir unglingsárin þá fá bæði kynin tækifæri til að sjá möguleikana sem tækning getur boðið þeim upp á. Þau geta farið úr því að vera hinn hefðbundni neytandi yfir í að skapa sín eigin forrit. Það er í kringum unglingsárin sem við festum í sessi stereótýpur. Flestir verða hræddir við tækni og forritun því að umhverfið segir okkur að aðeins nördar geti lært að forrita og að það sé ótrúlega erfitt og þá sérstaklega fyrir stelpur. Ef börn fá snemma að kynnast forritun á jákvæðan hátt mun tæknin horfa allt öðruvísi við þeim og mörg hver vilja læra meira og byrja jafnvel að móta framtíðina í átt að tækninámi.
Reynslan hefur sýnt að forritunarkennsla eflir markvisst sjálfstraust stelpna og að stúlkur sem hafa lært forritun nota kunnáttuna á annan hátt en drengir. Stelpur á aldrinum 10-13 ára eru móttækilegar fyrir sjálfsmyndarvinnu og með markvissri kennslu má efla sjálfsmynd þeirra svo um munar. Sjálfsmynd stelpna hrakar mjög á unglingsárunum (sérstaklega eftir 13 ára aldur) og er því mikilvægt að styrkja stoðirnar áður en unglingsárin skella á.
Stefanía (8 ára) og Óli Stef segja okkur aðeins frá tækninni
Í Tæknistelpu-Akademíu Skema er farið yfir forritun og tækni samþætt sjálfsmyndarvinnu og eru einkunnarorð akademíunnar skemmtun, samstaða og styrkur. Markmið Akademíunnar er að útskrifa tæknistelpur með skýra og jákvæða sjálfsmynd.
"Dóttur minni finnst þetta skemmtilegasta fagið í skólanum þessa önnina og segist ætla að verða forritari þegar hún verður stór. Það segir allt sem segja þarf. Ég er mjög ánægð með þetta framtak og vona að forritun verði kennd öllum grunnskólanemendum í framtíðinni."
Móðir 10 ára stelpu
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.