Afritun á Microsoft 365

Advania býður upp á alhliða afritunarþjónustu fyrir Microsoft 365 umhverfi með áherslu á öryggi, landfræðilega aðgreiningu og hagkvæmni. Með sjálfvirkri og reglulegri afritun tryggir þú að gögnin séu örugg og aðgengileg á Íslandi.

Spjöllum saman

Tryggðu rekstrarsamfellu

Öruggari afritun
Afritun á Office umhverfi
Notendur, Active Directory og allt sem fylgir þínu Microsoft 365 umhverfi er afritað.
Afritun til Íslands
Tryggðu rekstrarsamfellu og komdu kerfum hratt og örugglega af stað aftur með öruggri gagnageymslu innanlands.
Áhyggjulaus afritun
Láttu okkar sérfræðinga um að afrita á meðan þú sinnir skemmtilegu verkefnunum. Þínar þarfir fyrir þig.
Vöktun
Láttu okkur vakta þínar þjónustur og bregðast við frávikum allan sólarhringinn.

Tryggðu þín gögn með öruggri afritun úr Microsoft 365 skýinu

Með skilvirkri afritunarstefnu úr Microsoft 365 skýinu til Íslands tryggir þú aukið rekstraröryggi. Enn fremur getur þú sett upp sjálfvirkar afritunarprófanir, sem tryggja þig fyrir skakkaföllum og veitt fullvissu um að gögnin séu tilbúin til endurheimtar þegar þeirra er þörf.

Spjöllum saman

Ábyrgð á afritun gagna í Microsoft 365

Ábyrgð á afritun gagna í Microsoft 365 skýinu skiptist á milli Microsoft og viðskiptavinar. Með almennum leyfum skýjaþjónusta er afritun gagna ekki hluti af þjónustuveitingunni. Þannig er það á ábyrgð viðskiptavinar að tryggja öryggi og afritun eigin gagna en Microsoft ber ábyrgð á grunnvirkni og rekstri.

Advania getur aðstoðað viðskiptavini við að tryggja afritun gagna í Microsoft 365 með sérsniðnum lausnum sem mæta bæði öryggis- og rekstrarkröfum fyrirtækja.

Fréttir og fróðleikur

Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira um þessa vöru? Sendu okkur fyrirspurn.