Að uppfæra eða uppfæra ekki í Windows 8
Hér er farið yfir helstu breytingarnar sem mæta notendum Windows 8 og sýnt hvernig þær virka.
Hér er farið yfir helstu breytingarnar sem mæta notendum Windows 8 og sýnt hvernig þær virka.
Hinn fornfrægi „Start hnappur“ sem Windows notendur eru orðinn vanir (og jafnvel háðir) er horfinn í Windows 8. Í staðinn er komin „Start“ síða með flísum eða „Tiles“ sem eru flýtileiðir í þau forrit, möppur eða drif sem mest eru notuð. „Start“ síðan er hugsuð þannig hátt að notandi sérsníðir hana að sínum þörfum, hann hefur þær flísar sem henta á „Start“ síðunni. Það gilda engar reglur um hvaða flýtivísanir eru á þessari „Start“ síðu. Einnig er komin yfirlitssíða yfir öll þau forrit sem uppsett eru í viðkomandi tölvu.
Leitin hefur aldrei verið öflugari en í Windows 8. Ef þú ert staddur á „Start“ síðu, þá byrjar notandinn á að skrifa nafnið á því forriti eða skjali sem hann vantar að finna og leitin fer strax í gang.
Við uppsetningu á Windows 8 býðst notendum að setja upp sérstakt Windows auðkenni („Live ID“) sem gerir það að verkum að notendur eiga fleiri en eitt Windows 8 tæki (tölvu, snjallsíma eða spjaldtölvu) þá para þessi tæki sig sjálfkrafa saman. Notendur hafa fullt vald á því hvað parar sig saman og hvað ekki. Til dæmis getur þú auðveldlega parað sama vafrasögu þína og lykilorð að forritum og vefsíðum. Skydrive fylgir með windows 8 og færð þú þar 7 Gb geymslupláss í tölvuskýi Microsoft sem að sjálfsögðu parar sig á milli Windows 8 tækja.
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.