Allt um tölvuumhverfi í áskrift á mannamáli
Dæmi um lausn sem skilar miklum ávinningi fyrir fyrirtæki er Advania Business Cloud sem er tölvuumhverfi í áskrift.
Dæmi um lausn sem skilar miklum ávinningi fyrir fyrirtæki er Advania Business Cloud sem er tölvuumhverfi í áskrift.
Við hjá Advania viljum segja frá lausnum sem geta skilað viðskiptavinum okkar miklum ávinningi. Dæmi um eina slíka er Advania Business Cloud sem er tölvuumhverfi í áskrift sem hentar jafnt nýstofnuðum og rótgrónum fyrirtækjum.
Advania er stærsti samstarfsaðili Microsoft hér á landi og fékk mikla viðurkenningu á liðnum vetri þegar Microsoft bauð Advania, einu fyrirtækja á íslenskum markaði (og eitt af 150 í heiminum), þátttöku í sérstökum hópi samstarfsaðila sem fær, með beinni aðkomu Microsoft, að setja Azure pack upp í gagnaveri sínu hérlendis. Íslenskum fyrirtækjum býðst því að leigja aðgang að Advania Business Cloud tölvuskýi Advania án þess að fara út fyrir landsteinana með gögn eða tölvukerfi. Þannig er mikilvægri hindrun fyrir því að íslensk fyrirtæki nýti sér tölvuumhverfi í áskrift á borð við Advania Business Cloud rutt úr vegi og mikil tækifæri til hagræðingar opnast. Þá eru gæði umhverfisins sérstaklega vottuð af Microsoft auk þess sem verðlagningin tekur mið af verðskrá Microsoft Azure. Hér er því einkar hagstæður valkostur fyrir íslensk fyrirtæki hér á ferð, ekki síst þar sem ekki þarf að hafa áhyggjur af erlendu niðurhali með tilheyrandi kostnaði.
Við hjá Advania veitum alla ráðgjöf um það hvernig best er að nýta kosti lausna á borð við Microsoft Azure hér innanlands. Við hlökkum til að nýta Advania Business Cloud til að skapa ávinning fyrir fyrirtæki landsins.
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.