Árshátíð upplýsingatækninnar 2014
Við hjá Advania héldum okkar fjölmennustu Haustráðstefnu til þessa 12. september síðastliðinn. Hér eru nokkrir fyrirlestrar
Við hjá Advania héldum okkar fjölmennustu Haustráðstefnu til þessa 12. september síðastliðinn. Hér eru nokkrir fyrirlestrar
Magnús Scheving frumkvöðull var fyrstur á svið. Hann er þekktur fyrir kraft og áræðni þegar hann kemur fram og það var einmitt það sem við hugsuðum þegar við settum saman dagskrána, að Maggi mundi vekja ráðstefnugesti svona í upphafi dags. Hann hélt skemmtilegt erindi um það hvernig hann hefur náð árangri í gegnum tíðina. Meginboðskapurinn var að ástríða, skýr sýn og seigla sé lykillinn að því að ná langt. Við getum því miður ekki sýnt fyrirlesturinn hans hér, en nokkrar myndir eigum við þó af kappanum og gestunum í salnum.
Hægt er að finna myndasyrpu frá ráðstefnunni á Facebook síðu Advania.
Þá var komið að Google manninum sem margir höfðu beðið eftir. Jesper Ritsmer Stormholt stýrir Google for Work á Norðurlöndunum var næstur lykilfyrirlesara á svið. Hann fór á kostum þegar hann sýndi hvernig raddstýring á snjallsíma getur auðveldað okkur lífið. Jesper fór einnig ítarlega yfir þann ávinning sem fyrirtæki geta haft af hagnýtingu tölvuskýja. Hreint magnað show hjá kappanum.
Jim Grubb nokkur gerði sér lítið fyrir og flaug þvert yfir hnöttinn til að vera með okkur á Haustráðstefnunni. Hann er hvorki meira né minna en Chief Demonstration Officer hjá Cisco og fjallaði um hvaða þýðingu það hefur þegar öll tæki, byggingar, farartæki og já bara allt í veröldinni verður nettengt. Gagnamagn mun stóraukast, nýir möguleikar opnast við stjórnun fyrirtækja, ýmiss kostnaður minnkar – en mesta áskorunin verður í að tryggja öryggi allra þeirra upplýsinga sem til verða við þessa byltingu.
Upplýsingatækni er þýðingarmikill þáttur í árangursríku starfi hjálpar- og björgunarsveita á Íslandi. Það var Guðbrandur Örn Arnarson hjá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu sem fór yfir dæmi um þetta og sagði frá því hvað væri framundan og hvernig mætti nýta upplýsingatækni í björgunarstarfi.
Með því að búa til útprentuð þrívíddarmódel fyrir flóknar og erfiðar skurðaðgerðir má stytta aðgerðartíma, draga úr kostnaði og bjarga mannslífum. Paolo Gargiulo aðstoðarprófessor hjá HR, Íris Dröfn Árnadóttir, MA nemi í heilbrigðisverkfræði og Dr. Bjarni Torfason yfirlæknir á Hjarta-, lungna- og augnskurðdeild á Landsspítala Háskólasjúkrahúsi fluttu eftirminnilegan fyrirlestur um þetta efni. Fréttamönnum þótti þessi fyrirlestur nokkuð áhugaverður og bjuggu til litla frétt um málið.
Eskil Krag hjá Gemalto talaði um snertilausar kortagreiðslur og hans sögn verða þær stór hluti af greiðslumiðlun framtíðarinnar. Maður er svona ennþá að gera sér í hugarlund hvernig þetta muni virka, en það er allt að gerast í heimi upplýsingatækninnar og því ekkert ómögulegt.
Reginald Curtis er forstjóri NAAFI og í kynningu sinni útskýrði hann hvernig fyrirtækið umbreytti og útvistaði allri upplýsingatækni. Með þessum aðgerðum tókst fyrirtækinu að spara verulegar fjárhæðir. Lykillinn að þessu var að stjórnendur NAAFI tóku virkan þátt í verkefninu og voru allir staðráðnir í því að láta það takast.
Birkir Gunnarsson hefur farið á kostum á Advania blogginu með snörpum pistlum um mikilvægi aðgengis að upplýsingatækni. Við fengum hann því til að koma til landsins og segja okkur aðeins frá þessu spennandi máli á Haustráðstefnunni. Hann benti m.a. á arðsemi þess og mikilvægi að fyrirtæki sinni fötluðu fólki þegar þau nota upplýsingatækni til að nálgast sína viðskiptavini. Klárlega málefni sem verður bara heitara með tímanum.
Yngvi Björnsson prófessor í tölvunarfræði fjallaði um gervigreind en hann er einn af helstu sérfræðingum landsins í þessum fræðum og þó víðar væri leitað. Í fyrirlestri sínum fór hann yfir hvernig gervigreind getur nýst í viðskiptalífinu. Í máli hans kom fram að hún muni með tíð og tíma hjálpa til eða taka jafnvel við ákvörðunartöku hjá fyrirtækjum. Það flögraði að manni að sænski þátturinn „Alvöru fólk“ sem sýndur er á RÚV, væri kannski aðeins byggður á sambærilegum rannsóknum?
Nema hvað – við hjá Advania vorum hæst ánægð með daginn og nokkuð stolt af þéttri og innihaldsríkri dagskrá. Við hlökkum til að halda Haustráðstefnu að ári með tilheyrandi risaskammti af þekkingarmiðlun og skemmtun – allt til að þú og þitt fyrirtæki getir tekið eitthvað bitastætt með þér „heim“ .
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.