Betri ákvarðanir með viðskiptagreind
Ávinningur af árangursríkri innleiðingu á viðskiptagreind getur skilað fyrirtækjum og stofnunum margháttuðum ávinningi.
Ávinningur af árangursríkri innleiðingu á viðskiptagreind getur skilað fyrirtækjum og stofnunum margháttuðum ávinningi.
Ávinningur af árangursríkri innleiðingu á viðskiptagreind getur skilað fyrirtækjum og stofnunum margháttuðum ávinningi. Með því að vinna markvisst að uppsetningu og þróun viðskiptaumhverfis fá stjórnendur tæki til stuðnings upplýstrar ákvarðanartöku ásamt því að hafa möguleika á því að fá góða yfirsýn yfir rekstur og verkefna fyrirtækisins. Ekki veitir af enda verður rekstrarumhverfi fyrirtækja og stofnana sífellt flóknara með aukinni samkeppni og alþjóðavæðingu ásamt auknum kröfum viðskiptavina. Hraðinn og upplýsingamagnið sem stjórnendur fást við frá degi til dags krefst að auki meiri hraða og nákvæmni í upplýsingagjöf.
Upplýsingatæknin spilar sífellt stærra hlutverk í starfsemi fyrirtækja og stofnana en meðal þess sem þar þarf að glíma við er vaxandi gagnamagn. Verkefnin felast því í auknum mæli í að velja nauðsynlegar og viðeigandi upplýsingar fyrir stjórnendur og setja þær fram á aðgengilegan hátt.
Viðfangsefni þeirra sem starfa í viðskiptagreind hefur breyst mikið. Hefðbundin skýrslugerð er á undanhaldi og viðskiptagreind snýst nú fyrst og fremst um það að draga saman upplýsingar frá fjölbreyttum gagnaveitum, gera margvíðar greiningar ásamt því að samþætta áætlanir og árangursstjórnun. Þetta þarf svo að setja fram á aðgengilegan hátt í greiningum, skýrslum eða stjórnborðum. Nútíma viðskiptagreind færir stjórnendum fjölbreytileg tæki og tól í daglegum störfum þeirra:
Ásamt þessu er lögð meiri áhersla á samhæfingu áætlunargerðar og viðskiptagreindar. Stjórnendur geta í vaxandi mæli fengið aðgang að skýrslum, stjórnborðum og skorkortum hvar og hvenær sem er í gegnum spjaldtölvur og snjallsíma.
Það er margs að gæta við innleiðingu á viðskiptagreind. Þegar tekin er ákvörðun um að fara í verkefnið að byggja upp eða bæta viðskiptagreindarumhverfi fyrirtækisins þarf að huga að eftirfarandi þáttum:
Undirbúningur:
Fyrstu skref verkefnis
Þegar búið er að samþykkja og skilgreina verkefnið er farið í að:
Að fara í verkefni sem þetta er töluverð fjárfesting sem mun síðar skila fyrirtækinu verulegum ávinningi:
Til að innleiðing á viðskiptagreind gangi upp og framkvæmd hennar gangi snuðrulaust fyrir sig og skili þeim ávinningi sem lagt er upp með þurfa margir aðilar með mismunandi hæfni að leggjast á eitt. Mjög mikilvægt er að hafa í huga að því fer fjarri að þetta sé aðeins verkefni tölvudeildar. Innleiðing á viðskiptagreind er blanda af tækniverkefni og breytingaferli sem ólíkir aðilar geta komið að, til dæmis koma starfsmenn tölvudeildar og aðkeyptir verkakar með nauðsynlega tækniþekkingu. Þekking á rekstri fyrirtækisins þarf að sjálfsögðu að spila lykilhlutverk í verkefninu og þar koma að starfsmenn ólíkra sviða og deilda . Nauðsynlegt er að velja að aðila verkefninu með greiningarhæfni, þetta geta verið starfsmenn fyrirtækisins eða aðkeyptir ráðgjafar sem aðstoða við greiningar eða að koma upp þessari þekkingu.
Starfsmenn Advania hafa samanlagt áratugalanga reynslu í ráðgjöf og þjónustu í viðskiptagreind auk þess að hafa sérfræðikunnáttu í hönnun og smíði vöruhúsa gagna, gagnahreinsunar og samhæfingar gagna. Sérþekking okkar liggur í eftirfarandi þáttum viðskiptagreindar:
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.