Dell tekur forystu í sjálfbærri þróun
Í fyrstu umhverfisskýrslu sem við hjá Dell gáfum út árið 1998 byrjuðum við að setja fram samfélagsstefnu fyrirtækisins.
Í fyrstu umhverfisskýrslu sem við hjá Dell gáfum út árið 1998 byrjuðum við að setja fram samfélagsstefnu fyrirtækisins.
Í fyrstu umhverfisskýrslu sem við hjá Dell gáfum út árið 1998 var samfélagsstefna fyrirtæksins fyrst sett fram. Síðan þá hefur það komið í ljós að aðgerðir á heimsvísu eru lífsnauðsynlegar, við verðum að hugsa betur um auðlindir og vistkerfi jarðarinnar. Framfarir hafa orðið á sumum sviðum en ekki öðrum. Margir eru á því að viðskiptalífið og fyrirtæki verði að leika stærra hlutverk og vinna náið með ríkisstjórnum og öðrum aðilum til að efla sjálfbæra þróun.
Okkur hefur einnig orðið ljóst að það er meiri ávinningur af því að vinna á sjálfbæran hátt en við gátum ímyndað okkur í upphafi.
Árið 2012 tók Dell fyrstu skrefin í átt að sjálfbærri þróun. 2020 Legacy of Good áætlunin fylgir nú í kjölfarið en hún er niðurstaða innri stefnumótunar, samtali við viðskiptavini og ýmsa hagsmunaaðila ásamt greiningu á aðfangakeðju Dell. Nú er kominn tími til að grípa til aðgerða og í fyrrnefndri stefnumótun var niðurstaðan að leggja ætti áherslu á eftirfarandi svið:
Við viljum sem sagt nýta tækni- og sérþekkingu Dell til bæta umhverfið og hjálpa fólki. Til dæmis viljum við hjálpa viðskiptavinum okkar að minnka áhrif tölvureksturs sín á umhverfið og bæta líf ungs fólks með upplýsingatækni. Eftirfarandi tíu þætti eru leiðarstef hvað varðar stefnumörkun á sviði sjálfbærrar þróunar.
Áhersla á viðskiptavininn
Þarfir viðskiptavina okkar eru í forgrunni.
Nýsköpun
Við verðum að vinna á nýjan hátt til að komast yfir hindranir sem verða á vegi okkar
Vinnum á heimsvísu
Dell þarf bæði að stýra stórri og flókinni aðfangakeðju um allan heim og vinnur í mismunandi menningarheimum sem þarf að skilja og virða
Gagnsæi og ábyrgð
Við höfum sett okkur mælanleg og tímasett markmið á sviði samfélagslegrar ábyrgðar.
Leiðtogahlutverk
Dell ætlar vera leiðandi í umhverfismálum og á sviði samfélagslegra verkefna. Þetta verður gert í náinni samvinnu við önnur fyrirtæki, stjórnmálamenn, viðskiptavini og hagsmunaaðila sé eitthvað nefnt.
Samvinna
Til að ná markmiðum okkar þurfum við að vinna náið með öðrum. Þar má til dæmis nefna viðskiptavini, önnur fyrirtæki í upplýsingatækni, háskóla og félagasamtök. Við þurfum einnig að nýta þekkingu og sjónarmið starfsfólks Dell
Ofangreindir þættir voru leiðarstef okkar til að móta 21 metnaðargjörn markmið sem nást eiga árið 2020:
Samfélagið
Fólk
Við sjáum þegar árangur af þessu starfi og er Dell af mörgum talið í fremstu röð í umhverfismálum.
Fylgjst má með framkvæmd 2020 Legacy of Good áætluninni á vef Dell eða með því að fylgjast með Twitter: @dell4good eða #LegacyofGood
Myndbönd um Legacy of Good áætlunina
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.