Microsoft hættir stuðningi við Windows XP
Um þriðjungur einkatölva heimsins keyrir Windows XP. Eftir 8. apríl verða þær berskjaldaðar fyrir tölvuglæpum.
Um þriðjungur einkatölva heimsins keyrir Windows XP. Eftir 8. apríl verða þær berskjaldaðar fyrir tölvuglæpum.
Að öðru leyti verða engar öryggisuppfærslur, engir plástrar eða neitt slíkt.
Einu aðilarnir sem fá þjónustu frá Microsoft eru þeir sem keyra „Embeded Windows XP.“ Um er að ræða tæki eins og hraðbanka og kioska. Allur hugbúnaður frá þriðja aðila sem notaður er á Windows XP getur verið óöruggur þar sem uppfærslur berast ekki lengur frá viðkomandi hugbúnaðarframleiðanda (líkt og Adobe Flash á Windows 95).
Því ber að halda til haga að Windows XP mun virka 8. apríl en verður hinsvegar berskjaldað fyrir þeim hættum sem munu skjóta upp kollinum eftir þann dag.
Um þriðjungur af öllum vélum í heiminum keyra Windows XP. Þetta eru vélar sem er hættulegar fyrir alla tölvunotendur vegna þess hve berskjaldaðar þær verða fyrir tölvuárásum.
Hættan er sú að ef alvarleg öryggishola uppgötvast muni óprúttnir aðilar nýta þennan vélbúnað í svokallaðar botnet árásir. Þetta hefur því áhrif á alla.
Hvað þarf að gera fyrir 8. apríl?
Þeir sem ekki vita hvort að þeir séu með XP á netinu hjá sér eða hver staðan er á öryggisuppfærslum ættu að skoða veikleikaskönnunarþjónustu Advania. Nýverið tókum við upp lausnir frá öryggisframleiðandanum Qualys sem finnur allar vélar á netinu og gefur fullkomna mynd af því hvernig öryggisuppfærslum er háttað á þeim og uppsettum hugbúnaði.
Nýta má lausnir eins og Secunia PSI til að halda einkatölvum og hugbúnaði frá þriðja aðila á þeim uppfærðum með nýjustu öryggisuppfærslum.
Nánari upplýsingar um veikleikaskönnun Advania, Secunia uppfærsluumsýslu, sýndarplástrun eða Windows XP veitir undirritaður og Jóhann Áki BjörnssonViltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.