Forritum framtíðina
Evrópska forritunarvikan (EU CodeWeek) verður haldin dagana 11. – 17. október. Verkefnið er hluti af áætlun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um að efla stafræna færni (e-skills).
Evrópska forritunarvikan (EU CodeWeek) verður haldin dagana 11. – 17. október. Verkefnið er hluti af áætlun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um að efla stafræna færni (e-skills).
Okkur hjá Skema var falið að keyra verkefnið áfram hér á Íslandi og höfum við fengið mikilvægan stuðning frá Evrópustofu og Sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi við framkvæmdina. Undanfarnar vikur höfum við skipst á hugmyndum í gegnum netspjall og á fundi með fulltrúum allra þátttökuþjóða í Brussel. Í fyrra voru haldnir ríflega 300 viðburðir tengdir tækni og forritun sem yfir 10.000 einstaklingar í 26 löndum tóku þátt í. Í ár taka 38 þjóðir þátt og verða rúmlega 1.300 viðburðir haldnir í tilefni vikunnar um alla Evrópu. Á Íslandi eru viðburðirnir þegar orðnir 38 talsins og eru þeir meðal annars haldnir af
Skema, Evrópustofu, Microsoft, Epli, Kelduskóla, Brekkuskóla á Akureyri, /sys/trum, Háskólanum í Reykjavík, Ský og Fab Lab smiðju Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Við vonumst þó til að viðburðirnir verði enn fleiri og að fleiri fyrirtæki eigi eftir að taka vel við sér nú á lokasprettinum.
Forritun og tæknilæsi eru mikilvægir þættir í nútíma samfélagi. Tæknin mótar líf okkar í vaxandi mæli en staðreyndin er að fámennur hópur ræður því hvernig við nýtum okkur hana. Flest erum við aðeins neytendur að tækni sem aðrir hafa búið til fyrir okkur. Það er grundvallarmunur á því að nota tæknina á skapandi hátt og að vera óvirkir neytendur. Þessu viljum við hjá Skema breyta. Frá því að fyrirtækið var stofnað árið 2011 hafa rúmlega 3.000 krakkar á aldrinum 6-16 ára komið á námskeið í grunnforritun, Minecraft, Unity 3D, vefsmíði tækjaforritun og svokallaðan tölvutæting. Um 400 kennarar hafa setið námskeið í forritun og fengið sérsniðna kennslu á spjaldtölvur og hvernig nota á þær í skólastarfi.
Hlutfall kvenna í upplýsingatæknigeiranum er einnig skuggalega lágt. Forritun er einföld og góð leið til að laða stúlkur að sviðinu og kveikja áhugann hjá þeim sem síðan eykur líkurnar á menntun og starfsvali á sviði upplýsingatækninnar. Reynslan sýnir að eftir því sem við náum fyrr til stúlkna og kynnum þær fyrir forritun og möguleikum tækninnar, því líklegra er að þær velji forritun og upplýsingatækni í framtíðinni.
Eftir því sem við best vitum er Bretland eina landið sem hefur ákveðið að gera forritun að skyldufagi í námskrá. Það stefnir sömuleiðis í að forritun verði skyldufag fyrir alla aldurshópa í Finnlandi. Í Eistlandi og í Katalóníu er forritun valfag í grunnskólum og framhaldsskólum. Rætt hefur verið um að gera forritun að skyldufagi eða valfagi í grunn- og/eða framhaldsskólum hér á landi þannig að vilji er fyrir því að gera forritun og upplýsingatækni hærra undir höfði í íslenska menntakerfinu þó svo að nákvæm útfærsla liggi ekki enn fyrir. Við hjá Skemu sjáum mikinn áhuga hjá foreldrum og grunnskólum í að uppfæra menntun í takt við tækniþróun og breyttar þarfir samfélagsins. Foreldrar, skólastjórnendur og kennarar deila vilja okkar að auka tæknilæsi og tæknivitund hér á landi. Þátttakan í Evrópsku forritunarvikunni er mikilvægur liður í þessari viðleitni.
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.