Hjartasár á netinu
Þar sem mörg frjáls hugbúnaðarkerfi nýta OpenSSL þykir það stór frétt þegar veilur koma í ljós í jafn mikilvægu kerfi og OpenSSL er.
Þar sem mörg frjáls hugbúnaðarkerfi nýta OpenSSL þykir það stór frétt þegar veilur koma í ljós í jafn mikilvægu kerfi og OpenSSL er.
Síðastliðinn mánudag fannst veikleiki sem hefur valdið miklu uppnámi. Hann er að finna í viðbót við OpenSSL sem nefnd hefur verið hjartsláttur (e. “heartbeat” - RFC6520). Af þessum sökum hefur veilan fengið nafnbótina hjartablæðing (e. heartbleed). Þetta er vegna galla sem tengist ekki beint rafrænum skilríkjum, heldur kerfi sem beitir rafrænum skilríkjunum, þ.e. OpenSSL. Veiluna er aðeins að finna í ákveðinni útgáfu af OpenSSL. Það þýðir að það er ekki gefið að þó vefmiðlarinn nýti OpenSSL að veilan sé þar til staðar. Veilan er eingöngu í útgáfum 1.0.1 til og með 1.0.1f sem eru með hjartsláttarviðbótinni virkri. Ef vefmiðlarinn þinn hefur aldrei notað þessar útgáfur af OpenSSL og hjartsláttarviðbótina þá þarftu ekki að hafa áhyggjur af þessari veilu. Notendur Microsoft vefþjóna geta andað léttar, þar sem þessi veila hefur ekki áhrif á þá. Mikilvægt er að eigendur miðlara gangi úr skugga um að þeirra kerfi sé ekki með blæðandi hjarta með því að leita ráða hjá sérfræðingum í upplýsingaöryggi.
Vefstjórar ættu að íhuga hvort ástæða sé til að endursetja leyniorð notenda sem gætu mögulega hafa verið sýnileg í minni miðlarans
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.