Hver er hagræðingin af skýjalausnum?
Þessi færsla á að vera gagnlegt innlegg í umræðu um skýjalausnir, kostnaðinn og ávinninginn sem hagnýting þeirra felur í sér.
Þessi færsla á að vera gagnlegt innlegg í umræðu um skýjalausnir, kostnaðinn og ávinninginn sem hagnýting þeirra felur í sér.
Ský: Fyrirtæki tengist þjónustum hjá hýsingaraðilum í gegnum Internetið. Um er að ræða tölvuumhverfi, hugbúnað eða gagnaveitur sem geta verið hýstar víða um heim.
| Kostnaðarliður | Hýsing hjá fyrirtæki | Hýsing hjá hýsingaraðila | Ský |
| Leyfiskostnaður |
Kaup/leiga | Leiga | Leiga/innifalið |
| Vélbúnaður |
Kaup | Leiga | Skv. notkun |
| Varabúnaður |
Kostnaður við kaup x3 | Kostnaður við leigu x2 | Innifalið |
| Uppfærslur |
Kaup, leiga, skipulag og vinna | Vinna | Innifalið |
| Diskar og stýringar |
Kaup í stökkum |
Kaup/aukning eftir þörfum | Innifalið |
| Gagnamagn |
Kaup í stökkum |
Aukning eftir þörfum | Aukning/innifalið |
| Rafmagn og kæling |
Búnaður + rekstur |
Innifalið | Innifalið |
| Staðsetning |
Heima | Á Íslandi, oftast á höfuðborgarsvæðinu | Erlendis |
| Niðurhal og flutningur |
Innlent | Innlent | Erlent |
| Öryggi | Veltur á fjárfestingu og þekkingarstigi | Fer eftir hýsingaraðila | Öryggi mjög gott en sumt þarf að tryggja sérstaklega |
Þetta er ekki nákvæm skilgreining, en ég tel þetta nokkuð góða umræðupunkta, sérstaklega út frá því að margir stórir kostnaðarliðir haldast óbreyttir á milli rekstrarforma. Þar má nefna aðlögun, sérlausnir, viðskiptagreind og þjálfun starfsmanna og notenda.
Ég lýk þessari bloggfærslu með verðdæmi. Til að einfalda samanburðinn geng ég út frá því að um sé að ræða nýstofnað fyrirtæki. Ég sleppi kostnaði sem er óháður því hvernig rekstri tölvukerfa er háttað, t.d. einkatölvur og nettengingar. Fyrirtækið er lítið nýsköpunarfyrirtæki með flotta viðskiptahugmynd, forstjóra, markaðsstjóra, aðstoðarmann og einn snilling. Kröfurnar eru einfaldar, allir vinna í öllu (nema snillingurinn sem passar „vöruna“), koma þarf fyrirtækinu á framfæri og fjármagn er af skornum skammti.
Hér er það sem þarf:
| Skrifstofuhugbúnaður | Vefþjónn og viðmót |
| Bókhald | Skjalageymsla |
| Fjarvinnsla | Tölvupóstur |
| Samstarfsgrunnur | Vélbúnaður fyrir sýndarumhverfi |
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.