Hver stjórnar vinnudeginum, þú eða Outlook?
Hér eru nokkur góð ráð um hvernig þú getur tekið völdin af Outlook og stjórnað tímanum þínum sjálf(ur).
Hér eru nokkur góð ráð um hvernig þú getur tekið völdin af Outlook og stjórnað tímanum þínum sjálf(ur).
Outlook er án efa eitt öflugasta póstforritið í dag, en það getur auðveldlega truflað mann við vinnuna og tekið öll völd í dagsins önn. Hér eru nokkur góð ráð um hvernig þú getur tekið völdin af Outlook og stjórnað tímanum þínum sjálf(ur).
Með því að hefja daginn í Calendar færðu betri yfirsýn yfir verkefni dagsins og veist hvernig dagurinn lítur út.
Þú breytir stillingunum svona: Velur File og þar velur þú Options. Þá opnast nýr gluggi og þar velur þú Advanced og finnur valmöguleikann Start Outlook in this folder og með því að velja Browse færð þú valmöguleikann Calendar.
Velur File og þar velur þú Options. Þá opnast nýr gluggi og þar velur þú Mail og finnur þú fjóra valmöguleika fyrir tilkynningar um póst (Message Arrival). Með því að fjarlægja hakið úr þeim öllum hefur þú slökkt á öllum tilkynningum.
| 09:00 - 09:10 | Fá yfirsýn yfir verkefni dagsins í dagatalinu |
| 09:10 - 09:30 | Flokka nýjan póst |
| 09:30 - 11:30 | Vinna í verkefnum dagsins |
| 11:30 - 11:50 | Flokka nýjan póst |
Með þessu færðu frið til að vinna verkefni dagsins.
Nýir flýtilyklar eru stofnaðir með því að smella á Create New í Quick Steps valmyndinni sem er sýnd hér að ofan. Með flýtilyklum er ég eldfljótur að afgreiða póstinn minn eftir því hvort ég þurfi að stofna verkefni (task), boða fund eða færa póst í möppu. Ef ég get ekki svarað póstinum eða lokið málinu á tveimur mínútum þá stofna ég verkefni eða boða fund, allt eftir því hvað við á. Ef ég næ að ljúka málinu á tveimur mínútum eða minna þá sendi ég póstinn í geymslumöppu með Quick Steps flýtilyklunum.
Ekki opna póstinn, lesa yfir hann og skilja hann eftir án aðgerða. Þú þarf að ákveða hvað á að verða um póstinn þegar þú opnar hann. Getur þú svaraða honum strax og klárað málið? Þarftu að stofna verkefni til að ljúka málinu eða þarftu að boða fund til að ljúka því?
Ef þú afgreiðir póstinn með þessum hætti getur þú tæmt innhólfið þitt. Allir póstar verða annað hvort verkefni, fundir eða afgreiddir þannig að þú getur flutt þá í möppu sem gæti t.d. heitið geymsla. Það er mjög góð tilfinning að hafa tómt innhólf og vera búinn að finna stund og stað fyrir öll verkefni.
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.