Hvernig má mæta kröfum um góða þjónustu og greið samskipti?
Samskiptatækni hefur þróast mikið undanfarin ár og samhliða því þurfa fyrirtæki að huga vel að því hvernig mæta má kröfuhörðum viðskiptavinum.
Samskiptatækni hefur þróast mikið undanfarin ár og samhliða því þurfa fyrirtæki að huga vel að því hvernig mæta má kröfuhörðum viðskiptavinum.
Samskiptatækni hefur þróast mikið undanfarin ár og samhliða því þurfa fyrirtæki að huga vel að því hvernig mæta má kröfuhörðum viðskiptavinum. Við eigum flest það sammerkt að við viljum geta átt samskipti og fá þjónustu hvar og hvenær er og með sem skjótustum hætti. Unga kynslóðin sættir sig ekki lengur við að geta aðeins notað símtöl og tölvupóst í samskiptum sínum við fyrirtæki heldur vill geta notað vefspjall eða samfélagsmiðla. Allt þarf að gerast hratt og vel.
Samhliða velgengni Lync á fyrirtækjamarkaði þá hefur Skype slegið í gegn á einstaklingsmarkaði og nota rúmlega 350 milljónir manna Skype reglulega. Það má segja að Skype hafi minnkað heiminn, fjölskyldur og vinir treysta á Skype símtöl eða vídeósamtöl til að halda góðum tengslum. Nú ætlar Microsoft að samtvinna það besta úr þessum þjónustum og sérhæfa fyrir fyrirtæki. Jafnframt verður enn frekari kraftur settur í þróun nýjunga sem munu líta dagsins ljós á næstu misserum.
Þessi lausn er sérstaklega gerð til að vinna ofan á Lync og er fyrsta skiptiborðslausnin til að verða vottuð fyrir Microsoft Lync. Með Competella fær Lync nýja eiginleika og verður í raun skiptiborð og þjónustuver.
Competella hefur mikið af gagnlegri virkni:
Skjámyndin hér fyrir neðan sýnir mjög vel þá möguleika sem Competella bætir við Lync.
Undanfarin ár hefur Competella náð mikilli útbreiðslu á Norðurlöndum og notar breiður hópur viðskiptavina hugbúnaðinn. Í þeim hóp eru fyrirtæki með allt frá 20 starfsmönnum upp í nokkur þúsund. Þar á meðal er Norski olíurisinn Statoil en fyrirtækið notar Competella sem skiptiborð keyrandi ofan á Lync. Flest fyrirtæki á íslandi sem nota Lync ættu að geta nýtt Competella með góðum árangri.
Þjónustuverskerfi frá Interactive Intelligence samþættir öll helstu samskipti í eina lausn. Í CIC er hægt að meðhöndla símtöl, tölvupóst, vefspjall og skilaboð frá samskiptamiðlum í gegnum einn miðlara og sjá til að þau rati á réttan aðila hjá fyrirtækinu.
Í CIC er eftirfarandi virkni:
Þetta gerir CIC að framúrskarandi lausn. Hún er notuð um heim allan hjá fjölbreyttum hóp stórra fyrirtækja á borð við Lufthansa, Allianz, Thomas Cook og Göteborg Energi.
Þessar lausnir eru vonandi skref í rétta átt til að takast á við þennan margbreytilega samskiptaheim sem við búum við og þær miklu kröfur sem gerðar eru til þjónustustigs fyrirtækja og stofnana.
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.