Hvernig undirbýrðu vefi undir mikla umferð?
Hér eru nokkur ráð sem vonandi nýtast þeim sem reka vinsæla vefi, þ.e. vefi sem eiga við það lúxusvandamál að glíma við álagstoppa.
Hér eru nokkur ráð sem vonandi nýtast þeim sem reka vinsæla vefi, þ.e. vefi sem eiga við það lúxusvandamál að glíma við álagstoppa.
Það er hægt að stórauka afkastagetu vefja með því að besta forritun og gagnagrunna. Til dæmis má nota svokallað caching (flýtiminni). Röng uppsetning eða forritun á gagnagrunnum og tengingum við þá geta falið í sér flöskuhálsa. Brýnt er að yfirfara svokallaða indexa á gagnagrunnum og lágmarka köll í gagnagrunna. Það er auðvelt að bæta við vefmiðlurum en snúnara að skala upp gagnagrunna þegar álagið dynur á.
„Seint er að byrgja brunninn, þá barnið er dottið ofan í“ segir máltækið. Fyrirhyggja er lykilorðið hér. Það er kjörið að gera álagspróf og ráðstafanir áður en flóðbylgja notenda skellur á vefnum. Það má nýta hugbúnað eins og YSlow sem er viðbót fyrir Chrome og Firefox til að kanna ástand og afkastagetu vefsetra. YSlow skoðar til dæmis atriði eins og Client Side Caching, HTTP Requests, þjöppun á skjölum svo eitthvað sé nefnt. Yslow gefur vefjum einnig einkunn fyrir hraða.
Gangi ykkur vel að gera vefina ykkar álagsþolna!
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.