Hvers vegna gæðakerfi?
Á milli áranna 2011 til 2012 á sér stað risastökk í fjölda gæðavottaðra fyrirtækja hér á landi.
Á milli áranna 2011 til 2012 á sér stað risastökk í fjölda gæðavottaðra fyrirtækja hér á landi.
Gæðakerfi ganga út á að kortleggja ferli sem lýsa starfsemi fyrirtækisins þannig að allir starfsmenn vinni í takt. Af þessu leiðir að mun styttri tíma tekur að þjálfa nýtt starfsfólk. Mistökum og kvörtunum fækkar þar sem starfsmenn þekkja ferlin. Þetta leiðir af sér aukna ánægju viðskiptavina. Skjölun er komið í fastar skorður þannig að starfsmenn hafa aðgang að viðeigandi upplýsingum og skjalfesta afrakstur vinnunar eftir því sem þörf krefur. Með innleiðingu gæðakerfa er komið á menningu í fyrirtækjum sem gengur út á að gera stöðugt betur til að hámarka ánægju viðskiptavina og hagnað fyrirtækisins.
Þegar fyrirtæki ákveða að fá gæðavottun og vinna eftir tilheyrandi gæðastöðlum og verklagi þarf að leggja í mikla vinnu. Stór hluti er skrásetning vinnu- og gæðaferla. Stundum fer þó þannig að enginn vill bera ábyrgð á því að viðhalda skjölunum og gæðastjóri situr einn uppi með það verkefni. Það getur leitt til þess að gæðastjórinn skráir ferli og verklagsreglur sem reynast í ósamræmi við það verklag sem starfsmenn nota í raun og veru sem aftur veldur því að þeir vilja ekki vinna eftir hinu skrásetta ferli. Innleiðing gæðakerfis missir í framhaldinu marks, og þá er betra heima setið en af stað farið.
Á einfaldan hátt má kalla fram yfirlit yfir hvort starfsmenn hafi kynnt sér ný og breytt gæðaskjöl sem þeir eiga að nýta sér í sínum störfum.
Með því að tryggja upplýsingaflæði á réttum stöðum, höfum við með hjálp Gæðaheima ,komist á þann stað að allir starfsmenn vita núna hvaða skjöl þeir eiga að þekkja og vinna eftir. Það er forsenda þess að gæðakerfið virki, að ferlarnir styðji við starfsfólkið og hjálpi því að vinna saman á sem fljótlegasta og áhrifaríkastan hátt svo viðskiptavinurinn fái sem besta þjónustu. Það er svo sannarlega margt unnið með því. Eftir hverju ertu að bíða? Núna er einmitt rétti tíminn til að taka gæðastjórnun í gagnið.
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.