Íslenskt hugvit í alþjóðlegum kappakstri
Team Spark tekur þátt í hinni alþjóðlegu Formula Student mótaröð.
Team Spark tekur þátt í hinni alþjóðlegu Formula Student mótaröð.
Formula Student keppnirnar eru haldnar um allan heim, m.a. í Bandaríkjunum, Ástralíu og Japan og Evrópu. Team Spark tekur þátt í Formula Student UK sem er haldin á Silverstone í Englandi en þar mætast rúmlega 3.000 verkfræðinemar frá um 100 háskólum. Stig fást fyrir frammistöðu í hinum ýmsu greinum sem skiptast í kynningar á hinum ýmsu þáttum í hönnun bílsins og akstursgreinar. Aksturshluti keppninnar gefur 2/3 stigana sem eru í boði en til að fá að taka þátt í henni þarf að standast mjög strangar öryggisprófanir. Aðeins helmingur liðana stenst þær.
Markmið liðsins í ár eru þríþætt:
Árangur
Umhverfið
Í ár verður lagt meira upp úr prófunum á bíl síðasta árs sem kallast TS15, sem og bíl ársins í ár sem mun bera heitið TS16. Prófanir gefa mikilvægar upplýsingar varðandi framistöðu bílsins undir álagi, hvað þurfi að bæta eða jafnvel endurhanna frá grunni. Þá mun TS16 vera fyrsti bíll liðsins til að vera búinn vængjum en þeir stórbæta grip og snerpu bílsins.
Þeir sem vilja fylgjast með hvernig gengur að ná þessum markmiðum geta fylgst með á vef liðsins eða á Facebook síðu þess.
Þegar svo margir aðilar koma að sama verkefni skiptir höfuðmáli að upplýsingaflæði á milli liðsmanna og hópa innan liðsins sé gott og þar kemur tölvutæknin sér vel. Allar teikningar á íhlutum í bílnum eru hýstar á Advania Open Cloud tölvuskýinu og eru því aðgengilegar öllum liðsmönnum öllu stundum. Það lágmarkar líkur á misræmi í hönnun á milli mismunandi kerfa og er því gríðarlega mikilvægt. Þá hefur mikil endurnýjun á milli ára valdið erfiðleikum en á hverju ári eru um 80% liðsmanna á sínu fyrsta ári í liðinu. Því er varðveisla gagna mikilvæg og hefur liðið komið sér upp gagnabanka og Wiki-síðu sem verða geymd hjá Advania.
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.