Lægri kostnaður og aukin ánægja viðskiptavina með símalausn Advania
Símalausn Advania er skýþjónusta þar sem notendur fá þjónustuna með öruggum hætti í gegnum Internetið.
Símalausn Advania er skýþjónusta þar sem notendur fá þjónustuna með öruggum hætti í gegnum Internetið.
Símalausn Advania er öflugt þjónustutæki sem auðveldar og bætir samskipti milli fyrirtækis og viðskiptavina. Símalausn Advania er skýþjónusta sem veitir notendum þjónustuna með öruggum hætti í gegnum Internetið. Hún er hýst miðlægt í öruggum vélarsal þar sem starfsmenn Advania sjá um allan rekstur og vakta uppitíma allan sólarhringinn, allt árið um kring. Símalausn Advania hentar bæði stórum og smáum fyrirtækjum og einfalt er að breyta uppsetningu eða notendafjölda í takt við þarfir og umsvif fyrirtækja.
Vinnumálastofnun rekur 11 starfsstöðvar út um allt land. Símalausn Advania hentar því stofnuninni mjög vel. Notkun lausnarinnar tryggir að hvorki þarf að kaupa eða reka símstöðvar né greiða símalínugjöld fyrir hverja starfsstöð.
Símalausn Advania býður upp á margvíslega sérhæfða virkni sem raða má saman eftir þörfum hvers og eins fyrirtækis. Með kerfinu má til dæmis mæla símsvörun og geta þjónustumiðuð fyrirtæki nýtt sér slíka tölfræði til að bæta þjónustu með markvissum hætti. Nefna má fjölda annarra notkunarmöguleika;
Þegar fyrirtæki tekur Símalausn Advania í notkun fær það jafnframt aðgang að útlandagátt Advania. Þetta getur tryggt þeim sem hringja mikið til útlanda umtalsverða lækkun á símkostnaði. Tvennt skýrir ódýrari útlandasímtöl:
Með því að velja Símalausn Advania má í senn komast hjá allri fjárbindingu í búnaði sem og kostnaði við sérhæfðan mannafla við rekstur símkerfis. Um er að ræða örugga þjónustu með fyrirfram þekktan, mánaðarlegan rekstrarkostnað. Nú þegar nýta sér yfir 2.000 notendur, sem starfa hjá fjölbreyttum hópi fyrirtækja, Símalausn Advania.
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.