Lykill að vexti Opera Software
Við hjá Opera Software tengjum um 350 milljón notendur við netið.
Við hjá Opera Software tengjum um 350 milljón notendur við netið.
Þegar við hófum samstarf okkar við Thor gagnaverið þá settum við upp nokkra skápa í sérsmíðuðum gámi. Síðan þá höfum við þrefaldað notkun okkar með því að setja upp nýja og afar öfluga miðlurum. Advania hýsir ekki einungis búnað fyrir okkur heldur sér fyrirtækið um allan rekstur og þjónustu allan sólarhringinn, allt árið um kring. Að mörgu er að hyggja enda er þjónusta okkar við viðskiptavini okkar þess eðlis að hún má helst aldrei klikka. Advania rekur því varahlutalager fyrir þann búnað sem við nýtum og sérfræðingar fyrirtækisins eru á bakvakt allan sólahringinn og bregðast hratt við ef eitthvað kemur upp á.
Advania gefur okkur því ekki aðeins aðgang að reikniafli og rými í gagnaveri heldur eru sérfræðingar þeirra okkar augu og eyru, þeir sjá til þess að þjónusta okkar gangi snuðrulaust fyrir sig. Að öllu teknu saman hefur samstarfið við Advania gert okkur mögulegt að taka við milljónum nýrra notenda á tiltölulega skömmum tíma. Þar skiptir aðgangur okkar að grænni orku, öflugu gagnaveri og einvalaliði sérfræðinga mestu.
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.