Mannauðsstjórnun og upplýsingatækni
Gott mannauðskerfi styður við helstu aðgerðir mannauðsstjórnunar og styrkir starfsemi mannauðsdeilda. Með markvissri notkun mannauðskerfa hlýst hagræði og sparnaður.
Gott mannauðskerfi styður við helstu aðgerðir mannauðsstjórnunar og styrkir starfsemi mannauðsdeilda. Með markvissri notkun mannauðskerfa hlýst hagræði og sparnaður.
Sjálfvirkni í mannauðskerfum sparar mannauðsdeildum (og líka öðrum starfsmönnum) mikinn tíma. Til dæmis má láta ráðningarkerfi útbúa svarbréf til umsækjenda um starf og svara þannig stórum hópi á skömmum tíma. Þetta sparar ekki einungis tíma og vinnu heldur getur sjálfvirkni aukið samræmi og tryggt gæði í mannauðsstjórnun.
Með því að nýta sjálfsafgreiðsluviðmót mannauðskerfa geta starfsmenn og stjórnendur séð sjálfir um að skrá og viðhalda ákveðnum upplýsingum. Skráning á upplýsingum um menntun og námskeiðasókn hentar t.d. vel í þetta. Tími starfsmanna mannauðsdeilda sem annars færi í að skrá og viðhalda þessum gögnum getur þá nýst í önnur verkefni. Þetta eykur auk þess áreiðanleika upplýsinganna þar sem skráning þeirra færist nær uppruna upplýsinganna.
Eins og með öll upplýsingakerfi er afar mikilvægt að réttar upplýsingar séu skráðar í kerfið frá byrjun. Tengja þarf mismunandi gögn saman þannig að þau veiti réttar upplýsingar til réttu starfsmannana á réttum tíma.
Nota má mannauðskerfi til að tengja saman stefnu fyrirtækisins við mannauðsstjórnun. Þannig getur rétt notkun mannauðskerfa gert fyrirtækinu mögulegt að þekkja hæfni starfsmanna og tengja hana við hæfnikröfur starfa og skipulagseininga, mæla frammistöðu og setja markmið. Einnig er hægt að setja upp ýmsa ferla mannauðsstjórnunar sem tryggja gæði og samræmi, til dæmis við starfsmannasamtöl og frammistöðumat.
Með því að nýta mannauðskerfi á markvissan hátt má því ekki bara ná fram hagræði og aukinni skilvirkni heldur styðja við aðgerðir í mannauðsstjórnun og bæta þær og styrkja þannig stöðu mannauðsstjórnunar í skipulagsheildinni.
Um höfundinn
Ragnheiður Björgvinsdóttir lauk meistaraprófi í mannauðsstjórnun árið 2008. Síðan þá hefur hún starfað sem ráðgjafi í mannauðskerfi Oracle og hefur sérhæft sig í fræðslumálum, starfsþróun, starfsmannasamtölum og frammistöðumati auk annarra viðfangsefna mannauðsstjórnunar. Ragnheiður gengur á fjöll og dansar Bollywood í frístundum.
Hafa samband
Advania býður upp á starfsmannakerfi fyrir allar gerðir fyrirtækja og stofnana. Ef þú vilt vita meira um mannauðskerfi hafðu þá samband við Ragnheiði með því að senda henni tölvupóst.
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.