Ný Dell Latitude lína
Nýja Latitude línan býður upp á ríkulegt úrval af eiginleikum til að auðvelda notendum alla notkun og umsýslu.
Nýja Latitude línan býður upp á ríkulegt úrval af eiginleikum til að auðvelda notendum alla notkun og umsýslu.
Sigfús Jónasson, vörustjóri hjá Advania skrifar:
Á hverju ári kynna tölvuframleiðendur nýjar vörulínur þar sem ítarlega er farið ofan í helstu nýjungar. Eftirvæntingin er gjarnan mikil og að baki hverri kynningu liggja margir klukkutímar í rannsóknar- og þróunarvinnu. Allt er þetta gert til að mæta þörfum markaðarins en ekki síður til að hanna lausnir sem eru á undan sinni samtíð og skera framleiðendur frá samkeppnisaðilum. Á þessu ári urðu engar breytingar þar á og kynnti tölvuframleiðandinn Dell nýja línu af Latitude fyrirtækjafartölvum. Línan er sérstaklega hugsuð fyrir starfsfólk sem sinnir almennri skrifstofuvinnu, hvort sem unnið er á ferðinni, heima við eða á skrifstofunni. Latitude fartölvur hafa verið góðir vinnufélagar viðskiptavina okkar í áratugi og nýja línan styrkir aðeins þetta samband með nútímalegum eiginleikum sem gerðir eru til að mæta fjölbreyttum kröfum neytenda og hefur innblásturinn komið úr mörgum áttum.
Óhætt er að segja að Covid-19 hafi haft stefnumótandi áhrif á vöruhönnun þar sem bregðast þurfti við nýjum veruleika með aukinni fjarvinnu í huga. Birtingarmynd þess eru betri hljóðgæði í Dell fartölvum svo hægt sé að taka fjarfundi án aðkomu hátalara eða heyrnartóla. Margir tölvuframleiðendur eru ennfremur að auka gæði vefmyndavéla með því að hörfa frá hefðbundinni HD (1280x720) upplausn og er meira um vefmyndavélar með FHD (1920x1080) upplausn í nýju Latitude línunni. Annað dæmi um breyttar áherslur í vöruhönnun er aukin krafa neytenda um samfélagslega ábyrgð í rekstri og atferli fyrirtækja. Rannsóknir hafa sýnt að samfélagsábyrgð spili hlutverk í kauphegðun neytenda og hafa mörg fyrirtæki svarað þessu ákalli og brugðist við með ábyrgari hætti en áður. Í þessu samhengi má nefna að Latitude fartölvur hafa sjaldan verið hannaðar úr eins miklu magni af endurunnum efnum. Latitude 5000 er t.d. ein af fyrstu línunum til að nota endurunnar koltrefjar í framleiðslu og jafnframt sú fyrsta til að innihalda 21% af lífplasti (e. bioplastics) í bakhlið skjásins sem unnið er úr trjáum. Með þessu er verið að leggja lóð á vogarskálar þess að finna nýjar og umhverfisvænni leiðir til að framleiða tölvubúnað. Flestar Dell fartölvur bera jafnframt viðurkenndar vottanir, eins og ENERGY STAR, EPEAT eða TCO, og þessar merkingar má finna á vöruspjaldi hverrar vöru í vefverslun okkar. Ennfremur er horft til þeirra áhrifa sem tölvubúnaður hefur á notendur og eru Latitude fartölvur fáanlegar með ComfortView skjá sem er sérhannaður til að draga úr óþægindum sem blágeislar geta valdið augum. Blágeislar geta meðal annars dregið úr einbeitingu og aukið augnþreytu og því er þessi eiginleiki mikilvægur þáttur í að láta notendum líða betur í vinnunni. Á sama tíma er passað að skjárinn gefi ekki eftir í litanákvæmni eða öðrum gæðum.
Sú nýjung sem hefur líklega stolið senunni þetta árið er forrit sem heitir Dell Optimizer og fylgir nýju línunni. Optimizer aðlagar tölvuna að þörfum hvers og eins en notendur geta t.d. stillt hvaða forrit skipta þá mestu máli. Þannig verður öll vinna skilvirkari og vélin ræður betur við fyrirliggjandi verkefni. Þessi eiginleiki í Optimizer heitir ExpressResponse en möguleikarnir eru mun fleiri í forritinu, t.d. má auka öryggi, rafhlöðuendingu og fleira.
Nýja Latitude línan býður upp á ríkulegt úrval af eiginleikum til að auðvelda notendum alla notkun og umsýslu. Við viljum endilega heyra frá þér og fara betur ofan í saumana á hverri línu til að finna fartölvu sem hentar þínum verkefnum. Hægt er að hafa samband í gegnum sala@advania.is eða með því að bóka ráðgjafa okkar á fund.
Sjáðu Dell Latitude í vefverslun Advania ->
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.