Nýr upplýsingavefur Tollstjóra
Nýr vefur Tollstjóra var opnaður nýverið og leysir af hólmi þrjá eldri vefi. Tilgangur nýja vefsins er að miðla upplýsingum til og eiga samskipti við viðskiptavini embættisins.
Nýr vefur Tollstjóra var opnaður nýverið og leysir af hólmi þrjá eldri vefi. Tilgangur nýja vefsins er að miðla upplýsingum til og eiga samskipti við viðskiptavini embættisins.
Tollstjóri hefur með höndum tollgæslu í landinu ásamt innheimtu opinberra gjalda fyrir ríki og sveitarfélög í stjórnsýsluumdæmi Reykjavíkur, Hafnarfirði, Garðabæ og Kópavogi. Notendahópur vefsins er því stór, allir Íslendingar og allir sem stunda atvinnurekstur geta átt erindi við Tollstjóra.
Umfangsmikil vinna fór fram innan embættisins við endurskoðun og yfirferð efnis vefjarins heilmikið af efni var stytt og vefsíðum var fækkað um rúmlega 400. Mælingar á notkun eru nýttar til að færa síður framar sem mikið eru notaðar. Neðst á flestum síðum vefsins gefst notendum kostur á að tjá sig um hvort innihald síðunnar hafi verið hjálplegt. Endurgjöf frá notendum í gegnum þessa leið er nú þegar farin að skila sér. Margar gagnlegar ábendingar hafa borist og er reynt að bregðast við þeim strax ef kostur er.
Vinsælasta síða vefjarins er reiknivél fyrir innflutningsgjöld ætluð almenningi, þar reikna langflestir gjöld á fatnaði og skóm. Fast á hæla hennar koma Tollalínan sem er þjónustugátt fyrir vöruinnflytjendur og veftollskráin.
Mínar síður tengt skjalavistunarkerfi sem gerir notendum kleift að senda inn erindi með öruggum hætti og fylgst með afgreiðslu þeirra.
Nýtt vefviðmót á eldri upplýsingakerfi og um leið að tekið upp samevrópskt form inn-og útflutningsskýrslna.
Ein þjónustugátt er verkefnastofn sem hefur að markmiði að styðja við upptöku rafrænnar þjónustu hjá hinu opinbera með því að innleiða eina rafræna þjónustugátt (single window) fyrir helstu þjónustuþætti Tollstjóra og samstarfsaðila. Ávinningur þess er meðal annars bætt rafræn þjónusta, aukin skilvirkni stjórnsýslu og einföldun viðskipta.
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.