Öryggi snjalltækja tryggt með rafrænum skilríkjum
Í framþróun lausna fyrir snjalltæki hefur öryggi farið halloka. Sveinbjörn Óskarsson segir hér frá lokaverkefni sínu í tölvunarfræði sem fjallar um þetta efni.
Í framþróun lausna fyrir snjalltæki hefur öryggi farið halloka. Sveinbjörn Óskarsson segir hér frá lokaverkefni sínu í tölvunarfræði sem fjallar um þetta efni.
Í framþróun lausna fyrir snjalltæki (snjallsíma og spjaldtölvur) hefur öryggi farið halloka. Oft er auðkenning notenda að gagnaveitum í gegnum snjalltæki einfaldlega slök og þá er hvorki vænlegt að senda né taka á móti viðkvæmum upplýsingum eða leyfa aðgerðir sem fullnýta möguleika þessara tækja. Það er mikil þörf á því að bæta um betur og það var kveikjan að meistaraverkefni mínu í tölvunarfræði við Háskóla Íslands sem ber nafnið „Öryggi snjalltækja með hjálp rafrænna skilríkja.“
En hver er svo ávinningurinn af þessu nýja kerfi og hvað getur almennur notandi gert með því? Með sterkri fyrstu auðkenningu er meðal annars gefinn möguleika á að búa til miðlægt undirritunarskilríki sem notandinn getur notað á vefnum eða í gegnum smáforrit (app) á snjalltækinu sínu til að undirrita skjöl rafrænt. Einnig bjóða skilríkin á tækinu upp á að dulritun með dreifilykli skilríkisins svo hægt er að dreifa skrám á snjalltæki sem engin leið er að afkóða nema á sjálfu tækinu.
Lagt var mikið upp úr því að útfæra einfalda lausn fyrir rafrænar langtímaundirritanir á PDF skjölum. PAdES staðlinum frá Evrópsku fjarskiptastaðlastofnuninni (ETSI) var fylgt til hins ítrasta við útfærsluna. Mjög mikilvægt er að fylgja stöðlum við rafrænar undirritanir annars munu þær hugsanlega ekki standast lagarýni. Rafræn langtímaundirritun inniheldur upplýsingar um gildi skilríkis auk tímavottunar frá traustum aðila.
Með rafrænni undirritun beint úr símanum (eða spjaldtölvunni) er hægt að að staðfesta ýmsa gjörninga hvar og hvenær sem er. Þetta mætti til dæmis nota til að undirrita samninga eða umsóknir í PDF skjölum. Einnig má staðfesta færslur eða úttektir á XML skeytum. Dulritunina má einnig nota til að koma leyndarmálum eða trúnaðarupplýsingum til notenda. Þar má til dæmis nefna undirritaða samninga eða hvað annað sem við viljum alls ekki að óviðkomandi sjái.
Mikill áhugi er að halda áfram frekari þróun á kerfinu og skrifa biðlara fyrir iOS og Windows snjalltæki. Einnig væri gaman að útfæra fleiri aðgerðir í kerfinu svo sem auðveldari skráarskipti, auðkenning gagnvart öðrum kerfum, undirritunarský fyrir skjöl og umsjónarvef til hjálpar notends kerfisins. Möguleikarnir með skilríkin er óteljandi hvort heldur til undirritunar eða dulritunar.
Ef tími gefst til þá er nóg af skemmtilegum verkefnum til að leysa. Fyrsta skref er þó að koma kerfinu almennilega í loftið og gefa góðum notendahóp aðgang svo hægt sé að gera frekari prófanir á því.
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.