Rafrænar kosningar, hvers ber að gæta?
Íslendingar eru meðal þeirra þjóða sem nota Internetið hvað mest en þrátt fyrir það þá kjósum við langoftast með „gamla laginu“
Íslendingar eru meðal þeirra þjóða sem nota Internetið hvað mest en þrátt fyrir það þá kjósum við langoftast með „gamla laginu“
Kosningar í gegnum Netið hafa þegar sannað sig bæði hér á landi og erlendis. Það skiptir auðvitað máli hvers eðlis kosningarnar eru. Það þarf annað öryggisstig við kosningu í félag, íbúakosningu eða kosningar til sveitastjórna eða til Alþingis. Eins og gefur að skilja eykst sönnunarbyrði hvað varðar auðkenningu kjósenda og öryggiskröfur til kerfis sem notað er eftir því sem kosningar eru mikilvægari.
Kosningar í gengum Internetið sem hafa farið fram í Noregi, Eistlandi, Kanada og í fleiri löndum hafa gengið vel. Til dæmis má nefna að árið 2011 var kosið í gegnum Internetið í sveitastjórnarkosningum í Noregi í 10 sveitarfélögum. Við Íslendingar getum lært mikið af þeiri framkvæmd. Ennfremur má læra mikið af íbúakosningum í Reykjavík, Betri Reykjavík. Það verkefni hefur lukkast vel og hefur gefið borgarbúum, kjörnum fulltrúum og embættismönnum borgarinnar færi á að læra á rafrænt fyrirkomulag við kosningar og aðkomu almennings að ákvörðunartöku hins opinbera. Í Noregi og Eistlandi hefur gefist vel að útfæra rafrænar kosningar sem utankjörstaðakosningu. Þannig hófst kosning í seinustu sveitarstjórnarkosningum í Noregi 30 dögum fyrir kjördag og lauk tveimur dögum fyrir kjördag. Menn gátu kosið rafrænt eins oft og þeir vildu og gilti þá seinasta atkvæðið.
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.