SharePoint stefnir í skýið - SharePoint Conference 2012 í Las Vegas
Megináherslan á ráðstefnunni var á nýja útgáfu, SharePoint 2013, en hún leysir af hólmi eldri útgáfu sem sett var á markað árið 2010.
Megináherslan á ráðstefnunni var á nýja útgáfu, SharePoint 2013, en hún leysir af hólmi eldri útgáfu sem sett var á markað árið 2010.
Advania hefur verið leiðandi í uppsetningu og innleiðingu á SharePoint til margra ára. Fulltrúar félagsins fóru því á SharePoint Conference 2012 ráðstefnuna í Las Vegas til að kynna sér nýju útgáfuna og helstu strauma og stefnur varðandi notkun á þessu vinsæla kerfi. Hér á eftir verður stiklað á nokkrum atriðum sem vöktu athygli en ég nefni að þessi upptalning er ekki tæmandi yfirferð á öllum þeim nýjungum sem SharePoint 2013 inniheldur.
90 DAGA UPPFÆRSLUHRINGUR OG OFFICE 365
Í lykilfyrirlestri ítrekaði Microsoft þá stefnu sína að Microsoft myndi leggja vaxandi áherslu á SharePoint í skýinu. Þetta þýðir meðal annars að virkni SharePoint í nýju útgáfu Office 365 er nánast sambærileg við SharePoint 2013 sem hýstur er staðbundið. Til þess að sýna þetta í verki þá voru öll sýnidæmi frá Microsoft sem ég sá eingöngu útfærð í Office 365 útgáfunni. Microsoft tilkynnti að frá og með þessari útgáfu SharePoint yrði Office 365 útgáfan (sú sem keyrir í skýinu) uppfærð á 90 daga fresti. Notendur munu sem sagt fá nýjungar og bætta virkni á þriggja mánaða fresti.
Fyrir okkur sem ekki erum flinkir viðmótshönnuðir þá er úrval tilbúinna sniðmáta fyrir útlit meira og sveigjanlegra og hægt að smíða slík til seinni tíma notkunar. Eitt verð ég að nefna til biðbótar í lokin varðandi útlit og virkni. Nota má lista (Managed Metadata Term Set) til þess að skilgreina efnisyfirlit (Navigation). Þetta atriði gerir viðmótshönnunina og skipulag vefsins mun sveigjanlegri sér í lagi þegar þessi eiginleiki er nýttur með nýjum vefpörtum fyrir leit.
Leit í „social“ gögnum er með svipuðu sniði og fyrir önnur gögn. Þetta er afar mikilvægt þar sem miklum upplýsingum er oft miðlað í gegnum það form. Og þar sem við höfum nú nýja vefparta sem nýta leitarvélina þá getum við sett saman upplýsingasíður sem draga saman á einn stað upplýsingar sem geymdar eru á mismunandi formi og á mismunandi stöðum.
Önnur leyfi svo sem FAST Search og SharePoint Internet leyfin eru ekki lengur til og í raun orðin óþörf fyrir utanaðkomandi notendur og Internetlausnir. En SharePoint lausnir eru áfram hluti af Office 365 pakkanum. SharePoint Server leyfið hækkar um 28% til 38% í verði en sú hækkun fer eftir samningsfyrirkomulagi hverju sinni. SharePoint Foundation verður áfram í boði en SharePoint Workspace breytist mikið og fær nýtt nafn SkyDrivePro og verður áfram hluti af Office vöndlinum og er fyrir „Offline“ vinnslu.
NÁNARI UPPLÝSINGAR
Varðandi frekari upplýsingar þá bendi ég á að búið að blogga mikið um þessa nýju útgáfu. Sem sérstakur áhugamaður um Office tól, svo sem Excel þá hvet ég lesendur til þess að skoða nýjungar í 2013 útgáfunni af Office.
Ef spurningar vakna þá erum við hjá Advania boðin og búin að veita upplýsingar um þessa nýju og spennandi útgáfu af SharePoint. Sendið mér gjarnan línu. Ég hefði gaman af því að heyra frá ykkur.
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.