Scrum styttir tímann frá hugmynd að veruleika
Íslensk fyrirtæki hafa í auknum mæli innleitt Agile og Scrum aðferðarfræði sem orðið hefur til þess að tíminn frá hugmynd að veruleika styttist verulega. En um hvað snýst þessi aðferðarfræði?
Íslensk fyrirtæki hafa í auknum mæli innleitt Agile og Scrum aðferðarfræði sem orðið hefur til þess að tíminn frá hugmynd að veruleika styttist verulega. En um hvað snýst þessi aðferðarfræði?
Með innleiðingu Agile og Scrum hefur fjölmörgum íslenskum fyrirtækjum tekist að stytta tímann frá hugmynd að veruleika og auka ánægju starfsfólks og viðskiptavina. Kjarninn í Scrum aðferðafræðinni er að þverfaglegt teymi sérfræðinga hjálpast að við að leysa flókin vandamál og koma fullkláraðri vöru á markað. Eftir innleiðingu á Scrum hafa fáir áhuga á því að hverfa aftur til fyrri vinnubragða.
Scrum er vinnukerfi sem leiðir til lykta flókin verkefni með teymisvinnu, með nýsköpun í fyrirrúmi, og byggir á einföldu vinnulagi:
Í fyrsta lagi þá er Agile einfalt, en ekki auðvelt. Reglur eru fáar en viðfangsefnin sem þær eiga við eru flókin. Að "brjóta kröfur til virkni upp í viðráðanlega búta sem hægt er að útfæra á X dögum" hljómar einfalt en getur verið afar erfitt nema þú hafir reynslu af því. Í öðru lagi flýtir það fyrir því að teymið læri á verkefnið að hafa einhvern með víðtæka reynslu á staðnum. Öll fyrirtæki og teymi eru einstök en um leið oft ótrúlega lík. Reyndir Agile-þjálfarar sjá fljótt vandamál sem þeir hafa séð áður, geta svarað krefjandi spurningum og rutt úr vegi hindrunum.
Advania hefur undanfarin tvö ár boðið upp á kennslu og þjálfun í Agile aðferðum. Haldin eru fjögur opin námskeið á ári í samstarfi við Endurmenntun Háskóla Íslands og er Advania einnig í samstarfi við Scrum Foundation um tveggja daga viðurkennd námskeið sem veita Certified Scrum Master vottunargráðu. Fyrir utan að ræsa og þjálfa Scrum teymi innanhúss hjá Advania höfum við hjálpað viðskiptavinum í hugbúnaðar- og fjármálageiranum við að ná meiri árangri í hugbúnaðargerð með Agile aðferðum.
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.