Þínir reikningar og þín verð á Mínum síðum Advania
Advania hefur opnað aðgang að Mínum síðum fyrir þau fyrirtæki sem eru í viðskiptum við fyrirtækið.
Advania hefur opnað aðgang að Mínum síðum fyrir þau fyrirtæki sem eru í viðskiptum við fyrirtækið.
Í september sl. opnaði Advania aðgang að Mínum síðum fyrir þau fyrirtæki sem eru í viðskiptum við fyrirtækið. Það er skemmst frá því að segja að viðtökurnar hafa verið framar vonum og greinileg þörf er á þjónustu af þessu tagi.
Við erum stolt af Vefverslun á advania.is og við keppumst stöðugt við að auka úrvalið. Hægt er að kaupa fartölvur, borðtölvur, spjaldtölvur, skjái, rekstrarvörur, hugbúnað, netþjóna, afgreiðslulausnir, símalausnir og margt fleira – beint af vefnum. Með því að fá aðgang að Mínum síðum á advania.is geta fyrirtæki pantað vörur á sínum afsláttarkjörum.
Mínar síður bjóða marga aðra möguleika en að panta vörur á þeim afsláttarkjörum sem fyrirtæki eru með hverju sinni. Með því að skrá sig inn á Mínar síður geta starfsmenn fyrirtækja í viðskiptum við okkur fengið fullkomna yfirsýn yfir vörukaup fyrirtækisins hjá Advania. Innskráðir notendur hafa aðgang að eftirtöldum upplýsingum og aðgerðum:
Viðskiptavinir hafa yfirsýn yfir þær pantanir sem eru í gangi hverju sinni.
Notendur geta búið til innkaupalista sem vista má á vefnum til að nota síðar. Þessir innkaupalistar geta til dæmis innihaldið vörur sem oft eru pantaðar. Dæmi um þetta eru rekstrarvörur ýmiskonar. Innkaupalistar á Mínum síðum fela í sér hagræði og tímasparnað.
Með því að vera með aðgang að Mínum síðum hjá Advania geta viðskiptavinir nálgast alla útgefna reikninga og kreditreikninga vegna vörukaupa hjá Advania.
Skrá má þjónustbeiðnir til Advania á Mínum síðum.
Fyrirtæki sem staðsett eru á höfuðborgasvæðinu eða á Akureyri fá fría sendingu á vörum sem pantaðar eru í vefverslun. Fyrirtæki utan höfuðborgarsvæðisins fá vöruna senda á næsta pósthús.
Ef fyrirtækinu þínu vantar aðgang að Mínum síðum getur þú nýskráð þig á vef Advania eða sent tölvupóst á netfangið ragnarv@advania.is
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.