Tryggðu öryggi gagna með afritun
Stundum þarf ekki annað en bilaðan harðan disk til að stefna rekstri heilu fyrirtækjanna í voða.
Stundum þarf ekki annað en bilaðan harðan disk til að stefna rekstri heilu fyrirtækjanna í voða.
Ljósmyndarinn Peter Krogh komst vel að orði þegar hann sagði að það væru aðeins til tvær manngerðir í heiminum, þeir sem hafa lent í diskabilun og þeir sem eiga það eftir. Þegar slíkt gerist viltu eiga kost á því að geta endurheimt gögnin þín á fljótlegan hátt. Afritun gagna er því einn mikilvægasti þátturinn í rekstri upplýsingakerfa. Skilgreina má afritun þar sem gagn er fjölfaldað og flutt á aðra staðsetningu.
Einfaldasta leiðin til að muna hvernig ber að standa að afritun er að notast við 3-2-1 regluna:
Skipta má geymslutíma afritunar í daglega- mánaðarlega- og árlega afritun. Dagleg afritun fer fram einu sinni á sólahring. Algengur geymslutími daglegra afrita er 15-30 dagar. Mánaðarleg afrit eru framkvæmd einu sinni í mánuði og geymd 1-6 mánuði. Ársafrit eru gjarnan framkvæmd í lok bókhaldsárs og geymd í 1-7 ár.
Til að uppfylla reglugerðina og kröfur fjármálaeftirlitsins þarf að geyma afrit í fyrrnefndan tíma og sjá til að ekki sé með nokkrum hætti hægt að eyða eða breyta gögnum.
Rannsóknir benda til þess að meirihluti afritaða gagna eru afrituð í fleiri en tveimur eintökum. Draga má úr afritunarmagni með aftvöföldunarkerfi (deduplication) og langtímageymslu gagna (archive). Tilgangur aftvöföldunarkerfis er að finna og merkja samskonar bitablokkir í gögnum og koma þannig í veg fyrir að þau séu afrituð oftar en einu sinni. Langtíma geymsla gagna felur í sér að stöðnuð gögn eru varðveitt á geymslumiðli sem hugsaður fyrir geymslu til lengri tíma. Gagnageymslan frá Data Domain (sjá umfjöllun fyrir neðan) styður langtíma geymslu gagna.
Heildarafritun (Full Backup) er afritun á öllum skilgreindum þjónum/þjónustum. Heildarafritun getur bæði verið tímafrek og plássfrek. Jákvæða hliðin er sú að endurheimtagagna tekur skamman tíma, þar sem einungis er verið að sækja gögn frá einu afritunarsetti.
Breytingaafritun (Differential Backup) afritar einungis gögn sem hafa breyst frá síðustu heildarafritun. Breytingaafritun er hraðvirkari en heildarafritun og tekur minna pláss. Endurheimt viðbótaafrita tekur hins vegar lengri tíma heldur en heildarafritun.
Með viðbótaafritun (Incremental Backup) eru gögn og breytingar frá síðustu afritun (heildarafritun, viðbótaafritun eða breytingaafritun) eru afrituð. Viðbótarafritun tekur skemmri tíma en heildar- og breytingaafritun og krefst ekki eins mikils diskapláss. Endurheimt viðbótaafrita getur tekið umtalsverðan tíma þar sem oft þarf að sækja gögn úr nokkrum afritunarsettum.
Batatími og ásættanlegt gagnatap
Batatími (RTO – Recovery Time Objective) er skilgreining á hversu langur tími er ásættanlegur að koma þjónustu aftur í gagnið ef óhapp gerist.. Í sumum tilfellum má hámark gagnatap tiltekinna gagna ekki vera meira en örfáar klukkustundir. Ásættanlegt gagnatap (RPO - Recovery Point Objective) er skilgreining á því hversu oft þarf að framkvæma afritun. Til dæmis má segja ef ásættanlegt gagnatap er 1 klst., þarf afritun að eiga sér stað á klukkutíma fresti.
Aðferðafræði afritunarkerfa byggist á hefðbundinni afritun (traditional backup) eða sýndarþjóna afritun (virtual backup). Afritunarkerfi sem notast við hefðbundna afritun eru með afritunarhugbúnað uppsettan á þeim þjónum sem á að afrita. Hugbúnaður sér um að skanna þjóninn sem afrita á, finna skrár sem hafa breyst frá síðasta afriti eða síðasta heildarafriti. Sýndarþjónaafritun fer hins vegar fram í gegnum sýndarhýsil (VM host) og stuðlar þannig að minna álagi á vélina heldur en hefðbundin afritun.-
Þegar velja á afritunarlausn þarf að huga að ýmsu. Afritunarlausnin þarf að vera hagkvæm í innkaupum og rekstri. Eins þarf afritunarlausnin að henta fyrir þau kerfi og vélbúnað sem er til staðar hjá fyrirtækjum. Ráðgjafar Advania eru boðnir og búnir til að aðstoða þig við að finna réttu afritunarlausnina. Hér á eftir verður stuttlega greint frá helstu afritunarlausnum sem eru í boði hjá Advania.
Viðskiptavinur fær aðgang að afritunarhugbúnaði sem hann setur upp og stýrir. Afritunargögn eru send yfir netið á afritunarþjón sem hýstur er í gagnaveri Advania.
Heildstæð afritunarlausn, sem samanstendur af afritunarhugbúnaði og eigin gagnageymslu með 10-20x þjöppun gagna.
Vmware sýndarþjónn (Virtual Applicance), sem samanstendur af afritunarhugbúnaði og eigin gagnageymslu, byggt á Avamar tækni.
Sýndarþjónaafritun sem og hefðbundin afritun af Mircosoft þjónustu (Echange (DAG), SQL (AAG), Sharepoint), bæði af hefðbundnum og sýndarþjónum.
Vantar þig að fá upplýsingar um stöðuna á afritunarmála hjá þínu fyrirtæki og tillögur að því hvað megi gera betur? Ekki hika við að hafa samband, við erum til þjónustu reiðbúin.
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.