Við köllum hana heimili upplýsingatækninnar
"Eitthvað ferskt!" Með þau orð var lagt af stað í að skapa nýtt andlit Advania; verslun, móttöku, fundarstað, kaffihús, sýningarsvæði - allt í einu rými.
"Eitthvað ferskt!" Með þau orð var lagt af stað í að skapa nýtt andlit Advania; verslun, móttöku, fundarstað, kaffihús, sýningarsvæði - allt í einu rými.
Fyrir nokkrum mánuðum stóðum við frammi fyrir því verkefni að opna verslun Advania í nýjum höfuðstöðvum okkar við Guðrúnartún. Þetta er ekki í frásögu færandi þar sem ný verslun opnar sjálfsagt vikulega hér á landi – ef ekki oftar... og þó?
Þessi verslun átti ekki að vera hefðbundin. Við vildum reyna nýja leið og gekk hugmyndafræðin út á að skapa heimili fyrir Advania. Við höfðum úr um 340 m2 að moða – tóman geim á 1. hæð sem var ósköp venjulegur nema hvað að útsýnið er magnað, allt það fegursta sem sjá má frá höfuðborginni: Esjan, Skarðsheiði og Akrafjallið, Snæfellsjökull í allri sinni dýrð og auðvitað Harpa. Ekki oft sem slíkt er fyrir hendi á neðstu hæð í stóru fyrirtæki.
Verkefnið var ögrandi og takmarkið var að leysa það með einfaldri en um leið snjallri hönnun. Og þá var ekkert að vanbúnaði að byrja.
Við hófumst handa við að setja niður fyrir okkur hvernig verslun við vildum skapa. Við vildum alls ekki opna dæmigerða tölvubúð. Þær eru jú allar eins. En svo var líka hitt – þetta átti ekki aðeins að vera verslun heldur líka móttaka, sýningarsvæði, fundarstaður og kaffihús allt á einum stað, rými sem blandar saman gestum og starfsmönnum á þægilegan máta.
Nokkur grundvallaratriði voru höfð að leiðarljósi frá upphafi:Síðast en ekki síst vildum búa til spennandi en jafnframt vinalegt heimili upplýsingatækninnar.
Við fengum til liðs við okkur arkitektinn Frey Frostason sem getið hefur gott orð á sér m.a. fyrir hönnun á Marina hóteli, Slippbarnum, og Geysir shop. Hann hefur ásamt sínu fólki á THG arkitektar, hlotið lof fyrir þessi verkefni. Freyr lagði til að við tækjum formin í vörumerkinu okkar með inn í hönnunina þannig að allt í versluninni, hvert sem litið væri, minnti á Advania. Hann kom einnig með þá tillögu að gólfin yrðu flotuð og merkið okkar fræst í gólfið á nokkrum stöðum.
Allt er þetta svo tengt við kaffihúsið sem er einnig móttökurými, en það teygir sig inn eftir rýminu og gefur tækifæri á að setjast niður í rólegheitunum með kaffibolla og ræða vörur og lausnir Advania.
Te & Kaffi starfrækir kaffihúsið, sem nú þegar er vel sótt auk þess sem starfsfólk var fljótt að kveikja á perunni varðandi það hversu frábær fundarstaður verslunin er.
Við vildum nota tækifærið og sýna í verki hugmyndafræðina á bak við Advania vörumerkið. Útkoman er spennandi stefnumót hönnunar og vörumerkis. Það var því ekki leiðinlegt þegar viðskiptavinur lét eftirfarandi orð falla eftir að hafa skoðað verslunina „Mér finnst eins og ég sé komin inn í vörumerkið ykkar“. Draumur markaðsstjórans að heyra þessi orð :)
Við ákváðum að merkja svæðin ekki með hefðbundnum hætti heldur nota aðra nálgun. Það má því segja að punkturinn yfir i-ið séu myndirnar á veggjunum þar sem tilvitnunum nokkurra merkismanna eru gerð skil á listrænan hátt. Hér er um að ræða þau Bríeti Bjarnhéðinsdóttur – „Við göngum glaðar in í framtíðina“, Steinn Steinarr – „Kaffihúsin eru minn háskóli“ og Jóhannes Kjarval – „Það er heilmikið fyrirtæki að vera manneskja“.
Myndirnar eru teiknaðar upp í „griddi“ Advania og skornar út í sama efni sem notað er á veggjum, gólfum og loftum. Heildarsamsetningin myndar síðan lágmynd af hetjunum, sem gerir þessa útfærslu að listaverki. Hugmyndina að myndunum á Gunnar Þór Arnarson, hönnuður hjá Hvíta húsinu og höfundur Advania vörumerkisins.
Umfram allt á verslun Advania að vera lifandi vettvangur þeirra sem lifa og hrærast í upplýsingatækninni. Okkur til mikillar ánægju lítur út fyrir að við munum ná því markmiði þrátt fyrir að við séum nýbúin að opna og margar hugmyndir bíði þess að þeim sé hrint í framkvæmd. Að lokum vil ég skora á þig að kíkja í heimsókn og sjá hvort við heillum þig ekki upp úr skónum.
Við hlökkum til að sjá þig!
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.