Advania og Verkada koma með byltingu í öryggiskerfum
Í síðustu viku hélt Advania morgunverðarfund þar sem Verkada kynnti öryggislausn sína. Það var frábær mæting og þéttsetinn salur enda spennandi dagskrá.
Í síðustu viku hélt Advania morgunverðarfund þar sem Verkada kynnti öryggislausn sína. Það var frábær mæting og þéttsetinn salur enda spennandi dagskrá.
Rich Lane frá Verkada sýnir búnaðinn í notkun.
Blogg - 12. nóvember 2024Sigurgeir Þorbjarnarson
Vörustjóri funda- og samskiptalausna
Verkada, sem er þekkt fyrir nýstárlegar og samþættar öryggislausnir, sýndi hvernig lausnin þeirra virkar í raunverulegum aðstæðum. Birgitta Guðmundsdóttir Bender frá Icelandair var einnig á staðnum og sagði frá þeirra reynslu af notkun Verkada í nýjum höfuðstöðvum fyrirtækisins. Svaraði hún einnig spurningum um það af hverju fyrirtækið ákvað að taka lausnina í notkun og sagði frá framtíðarsýn þeirra með Verkada.
Verkada býður upp á nútímalegar, skýjastýrðar öryggislausnir sem sameina myndavélar, gestamóttökukerfi, dyrasíma, aðgangsstýringu, umhverfisskynjara og viðvörunarkerfi í eitt samþætt kerfi. Lausnin er hönnuð til að vera auðveld í uppsetningu og notkun, með einföldu viðmóti sem er aðgengilegt bæði í gegnum vef og farsíma.
Hvernig er Verkada frábrugðin hefðbundnum öryggislausnum?
Fulltrúi frá Icelandair útskýrði að fyrirtækið valdi Verkada vegna einfaldleika og öryggislausna sem bjóða upp á heildstæða yfirsýn yfir öryggiskerfi þeirra. Þau eru að vaxa hratt með Verkada og sjá mikla hagræðingu í rekstri og kostnaði.
Hafðu samband við Advania í dag til að fá frekari upplýsingar um hvernig Verkada getur hjálpað þínu fyrirtæki að tryggja öryggi og einfaldleika í rekstri. Við bjóðum um á ókeypis prufu sé þess óskað.
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.