Advania Svíþjóð sviptir hulunni af nýrri endurvinnslustöð
Advania í Svíþjóð hefur ákveðið að svara ákalli um bætta endurvinnslu tölvubúnaðar með því að opna sína eigin endurvinnslustöð.
Advania í Svíþjóð hefur ákveðið að svara ákalli um bætta endurvinnslu tölvubúnaðar með því að opna sína eigin endurvinnslustöð.
Aðstaðan er í Enköping og búist er við að endurnýting á búnaði hefjist í desember 2024.
Fréttir - 24. október 2023Stöðinni er ætlað að tækla hið stóra vandamál sem rafrusl (e. e-waste) er orðið. Þar verður eldri búnaður gerður upp og lagaður svo hægt sé að koma honum aftur í notkun - í stað þess að honum sé fleygt. Endurvinnslustöðin verður miðstöð endurnýtingar hjá Advania á meginlandinu og búist er við að á ári hverju muni yfir milljón einingar rata aftur í umferð. Þetta er hluti af áherslu Advania á hringrásarhagkerfið og að hámarka nýtingu búnaðar sem annars hefði endað í ruslinu.
Endurvinnslustöðin fylgir háum sjálfbærnisstöðlum, með það að markmiði að uppfylla alþjóðlega umhverfisvottun BREEAM-SE og sænska staðalinn NollC02. Byggingin verður knúin af sólarorku og mun nota jarðhita til upphitunar. Hún mun einnig bjóða upp á hleðslutöðvar fyrir rafmagnsbíla.
Advania á Íslandi hefur síðastliðin ár boðið viðskiptavinum aðstoð við að koma búnaði sem lokið hefur notkunartíma sínum í réttan farveg endurnotkunar og endurnýtingar. Fjölmargir viðskiptavinir hafa nýtt sér þá þjónustu. Í mörgum tilfellum hafa þeir hámarkað nýtingu og virði eldri búnaðar sem hægt er að nýta til endurfjárfestingar í nýjum tölvubúnaði.
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.