Lokaverkefni í tölvunarfræði sem gæti stórbætt þjónustu við farþega Strætó
Vagnavaktin er nýtt app sem þróað er af starfsmönnum Advania. Appið sýnir notanda hvenær von er á næsta vagni.
Vagnavaktin er nýtt app sem þróað er af starfsmönnum Advania. Appið sýnir notanda hvenær von er á næsta vagni.
Nýverið kláruðum við B.S. lokaverkefni í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík sem fól í sér hönnun, forritun og prófanir á appi fyrir Apple iOS stýrikerfið sem við köllum Vagnavaktina. Í allri okkar vinnu lögðum við áherslu á að auðvelt væri að færa appið yfir í önnur stýrikerfi fyrir snjallsíma og spjaldtölvur, til dæmis Android og Windows.
Við hófum störf í app teymi Advania síðast liðið haust en áður hafði Jökull unnið að þróun á Android appi fyrir Alþjóða vinnumálastofnunina (I.L.O.). Við höfðum unnið að rannsóknarverkefni á umferðarþunga í námi okkar í Háskólanum í Reykjavík þar sem við unnum með og nýttum við okkur GPS hnit úr bifreiðum. Okkur fannst því tilvalið að gera lokaverkefni sem fæli í sér meðhöndlun á GPS gögnum. Eftir að Strætó byrjaði að birta rauntímagögn sem sýna staðsetningu strætisvagna þá kviknaði áhuginnn á því að búa til app sem gæti bætt þjónustu við farþega Strætó.
Við hófum vinnu við Vagnavaktina í janúar síðast liðinn og unnum sleitulaust til loka aprílmánaðar þegar skýrslugerð vegna skila á lokaverkefni tók við. Uppbygging á verkefninu var hefðbundin, fyrst var byrjað á hönnunarvinnu, svo tók forritun við og endað var á prófunum.
Við þróuðum vefþjónustu í C# .NETsem talar við vefþjónustur frá nokkrum þjónustuaðilum. Við leggjum mikla áherslu á það í okkar högun að vefþjónustan visti gögn frá þjónustuaðilum í flýtiminni (e. caching) eins og kostur er. Öll virkni og útreikningar eru í vefþjónustunni, appið er í raun einungis lítið viðmót til þess að birta og senda svokölluð JSON gögn til og frá vefþjónustunni. Vefþjónustan sér alfarið um samskipti við spjaldtölvu eða snjallsíma notandans.
Þessi aðferðarfræði lágmarkar álagið á vefþjónusturnar sem við nýtum okkur í appinu. Þetta auðveldar að færa appið yfir á aðrar tegundir tækja. Menn reka sig oft á að öpp eru gjarnan þróuð þannig að mest af virkninni er í tækinu sjálfu. Það stóreykur flækjustig í að að þróa sama appið fyrir mörg stýrikerfi.
Í framtíðinni horfum við til þess að nýta styrkleika heildarþjónustu Advania við app þróun. Þeir felast í því að við getum boðið örugga hýsingu á kerfum og vefþjónustum sem liggja á bakvið öpp í snjallsímum og spjaldtölvum. Við höfum líka velt því fyrir okkur að svona app mætti nota til að safna upplýsingum um þær ferðir sem notendur eru að leita að og nýta sér. Þetta gæti aðstoðað aðila eins og til dæmis Strætó við að bæta þjónustu sína með því að laga hana að notkunarmynstri sem mælist í gegnum viðkomandi app. Þó þarf að huga mjög vel að persónuverndarsjónarmiðum við slíka upplýsingaöflun.
Að búa til app fyrir Strætó var afar lærdómsríkt ferli og við erum ánægðir með þá einkunn sem við fengum fyrir verkefnið. Advania hefur þegar gefið út og dreift appi sem hefur mikið notagildi fyrir almenning en það er Bensínvaktin.
Hafa sambandEf þú hefur áhuga á því að fá að vita meira um app þróun og smíði sendu okku þá línu.
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.