Aukinn stuðningur við verðandi og nýbakaða foreldra hjá Advania
Advania hefur ákveðið að innleiða nýjar breytingar til að styðja verðandi og nýbakaða foreldra á þessu merkilega, frábæra en krefjandi tímabili í kringum barnseignir. Með þessum breytingum vill fyrirtækið tryggja að starfsfólk fái þann stuðning sem það þarf til að takast á við ný hlutverk og ábyrgðir sem fylgja foreldrahlutverkinu.