Díana Björk Olsen ráðin forstöðumaður Mannauðslausna
Díana Björk Olsen hefur verið ráðin í starf forstöðumanns Mannauðslausna Advania. Díana Björk hóf störf hjá Advania árið 2021 og hefur frá árinu 2022 starfað sem deildarstjóri ráðgjafar og þjónustu á sama sviði innan Viðskiptalausna. Hún hefur nú þegar tekið við þessu nýja hlutverki.