Er þinn vinnustaður klár í gervigreindina?
Margir vinnustaðir eru farnir að huga að gervigreind í sinni vinnu. En hver ættu fyrstu skrefin að vera í gervigreindarferðalaginu?
Margir vinnustaðir eru farnir að huga að gervigreind í sinni vinnu. En hver ættu fyrstu skrefin að vera í gervigreindarferðalaginu?
Ævar Svan Sigurðsson
forstöðumaður
Vegferðin ætti að byrja á greiningu á núverandi ástandi umhverfis. Slík greining þarf að innifela m.a. núverandi hugbúnaðarleyfa 365 tenant uppbyggingu og dreifingu hugbúnaðar. Rýna gagnastefnu og stýringu gagna, sem fer m.a. yfir hvernig gögn eru flokkuð, merkt, aðgangsstýrð og rekjanleika gagna. Staðsetning gagna skiptir miklu máli þ.e.a.s. eru gögnin bæði á skráaþjónum og í skýinu, eru þau geymd á útstöðvum notenda o.s.frv.
Í dag eru miklar kvaðir lagðar á fyrirtæki hvað varðar gagnaöryggi, rekjanleika og UT öryggi almennt m.a. GDPR og NIS2, sem mun taka gildi á haustmánuðum 2024, o.fl. Því er brýnt, hvort sem nýta á gervigreind eða ekki, að hafa fullkomna yfirsýn, stjórn og rekjanleika á gögnunum okkar.
Þetta er hægt að gera á marga vegu t.d.
Hafa ber í huga að meðal gagnavöxtur hjá fyrirtækjum er 40-60% á ári. Svo eitthvað verður undan að láta. Því er líklegasta leiðin til árangur að nýta tæknina til þess að hjálpa við að vinna ofantalin verkefni en auðvitað eru áðurnefnd atriði ekki þar með sagt óþörf.
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.