Fimm stjörnu skjár - líka fyrir augun
Dell kynnir til leiks fyrsta 40 tommu 5K skjáinn í heimi sem er vottaður fyrir fimm stjörnu þægindi fyrir augu af TUV Rheinland®.
Dell kynnir til leiks fyrsta 40 tommu 5K skjáinn í heimi sem er vottaður fyrir fimm stjörnu þægindi fyrir augu af TUV Rheinland®.
Nýju skjáirnir koma í 34" og 40" útgáfum
Blogg - 29. janúar 2024Okkar fólk hjá Dell hefur í áraraðir verið fremst á meðal jafningja þegar kemur að hönnun og gæði tölvuskjáa. Þetta þekkja þau best sem eru kannski að lesa þetta blogg á 10+ ára gamla Dell skjánum sínum sem virðist hreinlega aldrei ætla að gefast upp. Á dögunum kynntu Dell nýja línu af skjáum sem ekki bara setja ný viðmið í gæðum, heldur einnig í heilsuvernd notenda.

Einn flottasti skjárinn í dag. 34" sveigður 120Hz með WQHD-upplausn, IPS Black-tækni og ComfortView Plus. Fyrsti skjárinn til að hljóta fimm stjörnu vottun frá TUV.

Hingað til höfum við vanist 60Hz endurnýjunartíðni í flestum skjáum sem að eru fyrir almenna skrifstofuvinnu eða efnissköpun. Nýja línan frá Dell tvöfaldar þetta og fer upp í 120Hz endurnýjunartíðni. Þetta er umtalsverð framþróun fyrir fólk sem að vinnur allan daginn við skjá og þarf skýrleika, lita nákvæmni, tengingarmöguleika og að vernda augun.
Nýju UltraSharp skjáirnir eru þeir fyrstu sem hafa hlotið TUV Rheinland® fimm stjörnu vottun fyrir þægindi augna, sem að er vottunarstaðall í tæknigeiranum.
Dell var fyrst til að uppfylla þennan nýja staðal með:
Þar sem mörg okkar eru farin að eyða miklum tíma fyrir framan tölvuskjáinn, skiptir tækni sem þessi æ meira máli.
Skjárinn býður upp á 99% DCI-P3 litarými, Thunderbolt 4, HDMI 2.1 FRL, DisplayPort 1.4 og RJ45 tengi og glæsilega hönnun. Minni 34 tommu útgáfa er einnig fáanleg.
Skjáirnir eru gerðir úr endurnýttum og endurnýtanlegum efniviði og eru umbúðirnar umhverfisvænar og endurvinnanlegar eins og ávallt hjá Dell. Skjáirnir eru einnig vottaðir nýjustu umhverfisstöðlum eins og EnergyStar® og TCO Certified Edge og eru EPEAT® Gold9 vottaðir. Dell er vottaður EPEAT Climate+ meistari.
Nýju skjáirnir hlutu nýsköpunarverðlaun á CES 2024 ráðstefnunni í Las Vegas - sem er stærsta og virtasta raftækjaráðstefna í heimi.
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.