Vinnslur sem bæta vinnulag
Afturvirkar launaleiðréttingar eru gagnlegar vinnslur og nýtast sérstaklega vel í launavinnslunni nú þegar nýir kjarasamningar hafa verið undirritaðir.
Með vinnslunni eru laun leiðrétt og skráðar færslur úr völdum útborgunum eru sóttar og settar í mínus og nýjar upplýsingar sóttar fyrir plúsfærsluna. Þannig er hægt að rekja leiðréttinguna, færslu fyrir færslu.
Fyrir betri yfirsýn og tímasparnað er hentugt að nýta vinnsluna þannig að færslurnar flytjast í bunkaskráningu. Þá er hægt að sjá og yfirfara allar leiðréttingafærslur á alla starfsmenn á einum stað og hægt að bæta við eða fella út færslur áður en þær eru settar í „Skrá tíma og laun“ í kerfinu.
Önnur vinnsla í H3 sem einfaldar vinnu notenda er fyrir Hækkanir. Þar geta notendur skilgreint forsendur hækkana á launatöflu og keyrt reglulegar hækkanir. Sem dæmi má nefna Orlofsflokkahækkanir, en þá hækkar aðgerðin orlofsupplýsingar, miðað við starfsaldur og/eða lífaldur starfsfólks.
Notendur geta alltaf skoðað tillögu hækkana áður en hækkun er svo framkvæmd.
Einnig er hægt að keyra Launaflokkahækkanir og Þrepahækkanir miðað við skráðar forsendur á launatöflur.
Í kjarasamningum stéttarfélaga er ákvæði um orlofs og desemberuppbætur, sem samið er um fyrir hvert ár.
Upphæðir uppbóta eru mismunandi eftir stéttarfélögum og þarf að kynna sér forsendur og upphæðir fyrir hvert stéttarfélag fyrir sig.
Vinnslan Reikna uppbætur léttir vinnu notenda með því að skrá forsendur á hverja launatöflu fyrir sig. Þannig reiknar kerfið hlutfallslega rétta upphæð, miðað við þau réttindi sem starfsmaður hefur áunnið sér.