Blogg - 22. apríl 2026

Jabra í heimsókn hjá Advania

Sigurgeir Þorbjarnarson
Vörustjóri funda- og samskiptalausna

Á dögunum naut Advania þeirrar ánægju að fá í heimsókn Jabra snillingana Johnny Sønderby Poulsen og Rune Nørholm Møller‑Madsen. Heimsóknin var liður í nánu samstarfi Jabra og Advania og hafði það að markmiði að kynna nýjustu vörur og lausnir Jabra fyrir íslenskum neytendum. Skoðuðum við þá sérstaklega heyrnartól og fjarfundarlausnir.

Rune Nørholm Møller‑Madsen kynnti Jabra Evolve3 heyrnartólin í beinni útsendingu á LinkedIn síðunni okkar, þar sem hann fór yfir helstu eiginleika þeirra og hvernig þau styðja við nútíma vinnuhætti.

Johnny Sønderby Poulsen fór jafnframt yfir það nýjasta í fjarfundarlausnum Jabra, með áherslu á fundarherbergjabúnað sem einfaldar rekstur, bætir upplifun notenda og styður við blandað vinnuumhverfi.

Jabra Evolve3 – fagleg heyrnartól fyrir nútíma vinnustað

Jabra Evolve3 línan er hönnuð fyrir fyrirtæki og stofnanir sem gera kröfur um áreiðanleika, gæði og þægindi í daglegum samskiptum.

Helstu eiginleikar Evolve3:

  • Hágæða hljóðnemi með virkum hljóðeinangrandi eiginleikum, sem dregur úr bakgrunnshávaða og tryggir skýran talflutning í símtölum og fjarfundum.
  • Jafnvæg hljóðupplifun sem hentar bæði fyrir tal og hlustun, til dæmis á fundum, í þjálfun eða daglegri vinnu.
  • Samhæfni við helstu samskipta- og fundakerfi, þar á meðal Microsoft Teams og aðrar UC-lausnir.
  • Einföld notkun og tenging, sem gerir heyrnartólin aðgengileg án flókinna uppsetninga.
  • Vistvæn og sterkbyggð hönnun, ætluð til daglegrar notkunar í vinnunni.

Evolve3 er því hentug lausn fyrir starfsfólk sem þarf áreiðanleg og þægileg heyrnartól.

Jabra Evolve3 85, MS, Link390a, Black

Nýjasta línan af heyrnatólum frá Jabra, Evolve 3 heyrnatólin eru mjög létt og úr mjúku efni á púðunum sem gerir þau einstaklega þægileg. Fullkomin heyrnatól fyrir bæði fundi og tónlist. Hægt að fá í svörtum og gráum lit.

Jabra Evolve3 85, MS, Link390a, Black

Jabra Scheduler – betri yfirsýn og skilvirkari nýting fundarherbergja

Jabra Scheduler er snjöll lausn sem einfaldar utanumhald fundarherbergja og eykur nýtingu þeirra.

Helstu eiginleikar:

  • Rauntímayfirsýn yfir stöðu fundarherbergja, sýnileg beint við inngang herbergis.
  • Bein fundarbókun við herbergisdyr, sem dregur úr tvíbókunum og ónýtum tíma.
  • Samhæfni við dagatöl og fundakerfi fyrirtækja.
  • Skýr og fagleg framsetning, sem bætir upplifun starfsmanna og gesta.
  • Fullur stuðningur við Microsoft Teams Panels sem einfaldar rekstur með Teams.

Scheduler hentar sérstaklega vel fyrir vinnustaði þar sem fundarherbergi eru mikið nýtt og skýr yfirsýn skiptir máli.

404

Jabra PanaCast 50 MTRoA – heildstæð lausn fyrir stærri fundarými

Jabra PanaCast 50 MTRoA (Microsoft Teams Rooms on Android) er alhliða fjarfundalausn sem sameinar mynd, hljóð og stjórnun í einni einingu.

Helstu eiginleikar:

  • 180° myndhorn, sem tryggir að allir þátttakendur í herberginu sjáist á fundum.
  • Snjöll myndavél með sjálfvirkri myndstýringu, sem aðlagar sig að fundargestum.
  • Öflug hljóðkerfi með háþróaðri talvinnslu, sem tryggir skýran hljóðflutning.
  • Sjálfstæð Android-lausn, sem einfaldar uppsetningu og dregur úr rekstrarflækju.
  • Sérhönnuð fyrir Microsoft Teams Rooms, með einfalda stjórnun og samræmda upplifun.

Lausnin hentar sérstaklega vel fyrir meðalstór og stærri fundarherbergi þar sem fagmennska og áreiðanleiki eru lykilatriði.

404

Jabra PanaCast 40 MTRoA – öflug lausn fyrir minni rými

PanaCast 40 MTRoA er hönnuð fyrir minni fundarherbergi og samvinnurými þar sem mikil áhersla er lögð á gæði í einföldu formi.

Helstu eiginleikar:

  • Skýr mynd og hágæða hljóð, þrátt fyrir minni formfaktor.
  • Snjöll sjálfvirk aðlögun að rýminu, bæði hvað varðar mynd og hljóð.
  • Einföld uppsetning og auðveld stjórnun.
  • Full samhæfni við Microsoft Teams Rooms á Android.

PanaCast 40 er góður kostur fyrir vinnustaði sem vilja faglega fjarfundalausn án þess að fórna plássi eða einfaldleika.

Jabra PanaCast 40 VBS, MTRoA kerfi með snertiskjá

Jabra PanaCast 40 VBS er Android AllInOne kerfi fyrir lítil fundarými með tveimur myndavélum sem ná 180° sjónarhorni og 4x aðdrætti. Sex hljóðnemar, öflugur hátalari og AI-rammastilling. Fylgir Jabra Control IP snertiskjár. Teams og Zoom vottun.

Jabra PanaCast 40 VBS, MTRoA kerfi með snertiskjá

Kynningartilboð í samstarfi Jabra og Advania

Í tilefni heimsóknarinnar og í áframhaldandi samstarfi Advania og Jabra verður boðið upp á sérstök kynningartilboð á Jabra MTRoA fjarfundarbúnaði, þar á meðal Scheduler og PanaCast lausnum. Hafðu samband við ráðgjafa Advania og fáðu nánari upplýsingar og aðstoð við val á lausnum.

Fleiri fréttir

Fréttir
24.04.2026
Ársreikningur Advania á Íslandi hefur verið samþykktur fyrir árið 2025.
Fréttir
24.04.2026
Árs- og sjálfbærniskýrsla Advania Group kom út í dag en í skýrslunni er dregin upp heildstæð mynd af rekstri samstæðunnar, stefnu hennar og sjálfbærnimarkmiðum.
Blogg
24.04.2026
Því hefur verið spáð í nokkur ár að það sé einungis tímaspursmál hvenær nútíma gervigreindarmódel nái því þroskastigi að geta framkvæmt heildstæðar netárásir og nýtt sér alla árásárkeðjuna svokölluðu sem netglæpamenn hafa haft að leiðarljósi í áratugi.
Blogg
22.04.2026
Á dögunum naut Advania þeirrar ánægju að fá í heimsókn Jabra snillingana Johnny Sønderby Poulsen og Rune Nørholm Møller‑Madsen. Heimsóknin var liður í nánu samstarfi Jabra og Advania og hafði það að markmiði að kynna nýjustu vörur og lausnir Jabra fyrir íslenskum neytendum. Skoðuðum við þá sérstaklega heyrnartól og fjarfundarlausnir.
Blogg
20.04.2026
Sjálfbærni snýst ekki bara um markmið heldur líka um aðgerðir, gagnsæi og upplýstar ákvarðanir. Þess vegna erum við hjá Advania á Íslandi afar stolt af því að kolefnisspor er nú sýnt á flestum vörum í vefverslun okkar.
Blogg
20.04.2026
Artome er hreyfanleg „allt í einni“ lausn fyrir fundi, kennslu og kynningar. Lausnin sameinar stóran skjá, hljóðkerfi og búnað fyrir myndfundi í einni stílhreinni og vel útfærðri einingu á hjólum.
Fréttir
16.04.2026
Advania hlaut titilinn Rísandi stjarna á Norðurlöndunum (e. Rising Star in the Nordics) á NVIDIA Partner Awards EMEA 2026.
Fréttir, Power Platform
12.03.2026
Árlegur Viðskiptakerfadagur Advania 2026 fór fram á Hilton í gær. Um 400 gestir mættu þar og sóttu sér þekkingu um fjölbreyttar viðskiptalausnir, nýjungar og tækifæri í stafrænni vegferð fyrirtækja.
Fréttir
10.03.2026
Lager, verkstæði og vöruafhending færðu sig um set og opnuðu á nýjum stað í Skútuvogi 12 mánudaginn 30. mars.
Fréttir, Power Platform
16.02.2026
Á Viðskiptakerfadegi Advania þann 11. mars næstkomandi koma saman sérfræðingar Advania, viðskiptavinir og fulltrúar Microsoft til að ræða framtíð viðskiptakerfa, gervigreindar og sjálfvirkni. Viðburðurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica og opnar húsið klukkan 12:30.
Blogg
02.12.2025
Í vöruflóru Dell leynist lítið en merkilegt forrit sem þú kannast kannski ekki við. Dell Display and Peripheral Manager (DDPM) er forrit sem gerir þér kleift að stjórna öllum skjáum og jaðartækjum á einum stað. Ef þú hefur ekki skoðað þetta þrælsniðuga forrit, mælum við með að þú gerir það í einum grænum.
Blogg
25.04.2025
Sveigjanleiki gerir okkur ekki aðeins kleift að styðja starfsfólk okkar heldur skilar sér í aukinni framleiðni, lægri starfsmannaveltu og sterkari tengslum á vinnustaðnum. Þetta er stefna sem sýnir að við leggjum áherslu á fólk, en um leið er hún mikilvæg fjárfesting í framtíð fyrirtækisins. Þegar starfsfólk upplifir raunverulegan stuðning og skilning, verður það ekki aðeins ánægðara heldur leggur sitt af mörkum með meiri ástríðu og skuldbindingu.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.