Þessi tegund árása hefur verið plága undanfarna mánuði og því vert að fara nánar yfir málið. Skjaldarteymi Advania er boðið og búið að veita frekari ráðgjöf með þessa tegund ógna og hefur aukin póstvörn Skjaldar náð góðum árangri við að stöðva þessa svikapósta.
Hvernig virka þessi svik gagnvart mér?
1. Þér berst tölvupóstur, t.d. frá traustum aðila, t.d. jon.jonsson@flugmenn.is, sem inniheldur svikult viðhengi eða hlekk
2. Hefðbundnar póstsíur sjá ekkert athugavert við tölvupóstinn þar sem hann er að koma frá traustum aðila (@flugmenn.is)
3. Í góðri trú smellir þú á svikula hlekkinn eða opnar viðhengi sem blekkir þig inn á falska innskráningarsíðu, oft í nafni Microsoft
4. Þú skráir þig inn á síðuna, aftur í góðri trú, með þínum réttu aðgangsstýringum. Gefur upp notendanafn og lykilorð og staðfestir með því að nota tvöfalda auðkenningu
5. Í raun varst þú að senda ógnaraðilanum á bakvið svikin allar upplýsingar sem hann þarf til að geta sjálfur auðkennt sig í þínu nafni inn í þitt raunverulega umhverfi. Þú hefur í raun ómeðvitað „afhent honum lyklana“ í góðri trú.
6. Ógnaraðilinn tengir sig inn í þín kerfi með þínum aðgangslyklum og getur þar valdið ómældum skaða. Algengt er að hann sendi fleiri svikapósta með svikult viðhengi eða hlekk á þúsundir nýrra fórnarlamba í þínu nafni.
Þannig gengur þessi svikaherferð áfram og endurtekur sig og ógnaraðilar safna innskráningarupplýsingum fjölda fórnarlamba.