Þessi bloggfærsla birtist fyrst í 11. nóvember 2024
Við sem lifum og hrærumst í netöryggi, erum staðráðin í því, að reyna að koma í veg fyrir að fólk verði netþrjótum að bráð og því tókum við saman hagnýt ráð sem hægt er að hafa í huga þegar þið eruð óviss um öryggi ykkar á netinu.
Það er lykilatriði að við séum meðvituð um hvaða síður við séum að versla við og sérstaklega þegar þarf að setja inn persónuupplýsingar, kortaupplýsingar eða nota rafræn skilríki. Svik á netinu skiptast í nokkrar tegundir og förum við yfir þau helstu hér.
Að þekkja „Phishing“ tölvupósta
Vefveiðar eða „Phishing“ er ein algengasta leiðin sem svindlarar nota til að stela upplýsingum. Póstarnir eru hannaðir til þess að líkjast raunverulegum póstum frá alvöru fyrirtækjum en oft er hægt að rýna í smáatriðin og sjá að um svik er að ræða. Því miður er þetta að verða sífellt erfiðara en ef eitt eða fleiri atriði eru grunsamleg, þá er best að láta póstinn vera.
Skoðaðu netfang sendandans
Vefveiðipóstar nota oft netföng sem líkjast lögmætu netfangi fyrirtækis en við nánari athugun innihalda aukastafi, búið að rugla stöfum, skipta út bókstöfum fyrir svipaða tölustafi eða jafnvel bæta inn heilu orði
Netfangið „support@amazon.com“ gæti verið falsað sem „support@amaz0n.com“, „support@amazonsupport.com“ eða „support@amazonn.com“
Varist „brýnt orðalag“ (e. urgent language)
Tölvuþrjótar reyna að skapa þrýsting og tilfinninguna að það þurfi að bregðast samstundis við annars missum við af eða eitthvað gerist. Þá fáum við ekki tíma til að hugsa og verðum fljótfær. Varist orðalag eins og „Tilboðið gildir aðeins núna!“ eða „Vantar upplýsingar strax!“
Grunsamlegir hlekkir
Forðist að smella beint á hlekki, því hlekkir í vefveiðipóstum geta vísað á falskar síður eða spilliforrit (e. malware). Ef þið eruð óviss er hægt að slá inn vefslóð verslunarinnar beint í vafrann þinn, sérstaklega ef tölvupósturinn biður um reikningsupplýsingar.
Önnur leið er að sveima yfir hlekkinn til að forskoða áður en smellt er á hann og þannig er hægt að sjá raunverulegu vefslóðina og meta hvort hún passi við það sem er verið að auglýsa.
Að sannreyna vefsíður
Þegar verslað er á nýjum eða ókunnugum vefsíðum þarf að hafa varann á því algengt er að netþrjótar búi til falsaðar síður sem eiga að líkja eftir raunverulegum verslunum. Það má hafa það í huga að algengt er að þessar síður bjóði upp á tilboð sem eru of góð til að vera sönn. Gott er að halda sig við vel þekktar og traustar netverslanir þegar hægt er.
Rannsakaðu áður en þú kaupir
Fljótlegast er að leita á netinu eftir nafni verslunarinnar eða síðunnar og bæta við „review“ eða „scam“ og skoða hvað kemur upp. Hægt er að lesa umsagnir á virtum síðum á borð við Trustpilot og Google Reviews.
Skoðaðu slóðina á síðunni
Gakktu úr skugga um að slóðin á vefsíðunni byrji á "https://" áður en þú slærð inn persónulegar upplýsingar eða greiðsluupplýsingar þar sem „s“ stendur fyrir secure og gefur til kynna að gögnin séu dulkóðuð.
Athugaðu tengiliðaupplýsingar
Svindlsíður hafa oft takmarkaðar eða jafnvel falsaðar upplýsingar, á meðan ósviknar síður eru með skýrar upplýsingar um hvernig hægt er að hafa samband, svo sem með netfangi, símanúmeri og tilvísunum á samfélagsmiðla.
Aðrar leiðir til að afla upplýsinga um vefsíðuna
Hér er hægt að athuga hversu gamalt lénið sé Domain Name Age Checker. Ef lénið er nýlegt þá eru miklu meiri líkur á að það sé svindl. Einnig er hægt að nýta sér Whois Lookup til þess að fletta upp ítarlegri upplýsingum um lénið og sjá hvort upplýsingar passi við það sem vefsíðan heldur fram.