Þrjú ný svið innan Advania: Enn meiri sókn í gervigreind og netöryggi
Þórður Ingi Guðmundsson hefur tekið að sér stöðu forstöðumanns Gervigreindarseturs Advania og Guðmundur Arnar Sigmundsson hefur gengið til liðs við Advania sem netöryggis- og gagnaþróunarstjóri. Þessi tvö stefnumarkandi svið munu tilheyra nýstofnaðri Skrifstofu stefnumótunar, sem heyrir beint undir forstjóra.