imageDescription
Gervigreind 9. júlí, 2026 2 mín að lesa

„Tæknin á að læra á okkur“

Guðmundur Hafsteinsson, betur þekktur sem Gummi Google, er gestur nýjasta þáttar Tæknitals. Þar fer hann yfir einstaka vegferð sína frá Húsavík til Kísildalsins, þar sem hann kom að þróun nokkurra þekktustu tæknilausna heims, meðal annars Google Maps fyrir farsíma, Siri hjá Apple og síðar Google Assistant.

Í þættinum rifjar Guðmundur upp fyrstu árin hjá Google þegar farsímar voru enn á frumstigi og fáir sáu fyrir sér hversu stórt hlutverk þeir ættu eftir að gegna í daglegu lífi fólks.

„Meira að segja innan Google voru efasemdarraddir um hvort kort í farsímum skiptu einhverju máli. Við trúðum því einfaldlega að það hlyti að vera gagnlegt að geta fengið leiðbeiningar og leitað að upplýsingum í símanum sínum.“

Á ferlinum þróaðist áhugi hans í átt að raddstýringu og samskiptum fólks við tæknina. Sú vegferð leiddi hann meðal annars til Siri og síðar Google Assistant.

„Ég hef lengi verið spenntur fyrir þeirri hugmynd að við eigum ekki að þurfa að læra á tæknina. Tæknin á að læra á okkur, aðlagast okkur og vera gagnleg án þess að við þurfum að glíma við flóknar leiðbeiningar.“

Þrátt fyrir að hafa starfað hjá stærstu tæknifyrirtækjum heims hefur frumkvöðlaandinn aldrei verið langt undan. Guðmundur segir mikilvægt að einblína á að leysa raunveruleg vandamál frekar en að byggja fyrirtæki með sölu í huga frá fyrsta degi.

„Þegar maður fer í vöruþróun vill maður fyrst og fremst búa til eitthvað sem gagnast fólki á mælanlegan og jákvæðan hátt. Ef markmiðið er bara að selja fyrirtækið einhvern daginn þá er hætt við að maður missi sjónar á tilganginum.“

Í þættinum ræðir Guðmundur einnig nýsköpun í Kísildalnum, þróun gervigreindar og hvaða eiginleikar skipta mestu máli þegar byggja á upp tæknifyrirtæki sem getur haft áhrif á heimsvísu.

Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan og á Spotify