HönnunarMars mikilvægt hreyfiafl í íslensku samfélagi
Á HönnunarMars er hönnun kynnt sem atvinnugrein sem byggir á traustum grunni og gegnir veigamiklu hlutverki í samtímanum.
Á HönnunarMars er hönnun kynnt sem atvinnugrein sem byggir á traustum grunni og gegnir veigamiklu hlutverki í samtímanum.
Hátíðin hefur fest sig í sessi sem ein af stærstu hátíðum borgarinnar. Mikil þátttaka borgarbúa er mikilvægur grunnur að því að auka alþjóðlega þátttöku. Markvisst hefur verið unnið í að fá til landsins erlenda blaðamenn og gesti og mikið hefur verið unnið í að þróa þau sambönd og tryggja áframhaldandi samstarf. Mælingar Capacent sýna að þegar á þriðja ári hátíðarinnar þekktu 95% þjóðarinnar vörumerkið HönnunarMars. Mælingar Creditinfo sýna að hátíðin fær mikla umfjöllun í íslenskum fjölmiðlum á meðan á hátíðinni stendur. Þær sýna þar að auki mjög mikla aukningu á umfjöllun um íslenska hönnun allt árið.
Einn af aðalviðburðum HönnunarMars ár hvert er fyrirlestradagurinn DesignTalks og markar hann upphaf hátíðarinnar. Markmið Hönnunarmiðstöðvar er að hanna dag, þar sem þeir sem fylgjast vel með helstu straumum og stefnum í hönnun, viðskiptum og tækni geta ekki látið fram hjá sér fara. Í ár bar DesignTalks yfirskriftina Dealing with Reality en þar var velt upp spurningunni um hönnun og hönnuði sem stefnumótandi afl í viðskiptum og stjórnun. Hönnuðir og arkitektar eru farnir að sinna nýju hlutverki í ríkara mæli þar sem hönnun er leiðandi afl á tímum breytinga. Hönnun snýst um innihald og upplifun en ekki aðeins útlit eða áferð eins og áður var.
Á HönnunarMars stendur Hönnunarmiðstöð fyrir kaupstefnunni DesignMatch í samstarfi við Norræna húsið. Þetta var í fimmta skiptið sem verkefninu var hleypt af stokkunum en það hefur mælst vel fyrir meðal hönnuða og þeirra fyrirtækja sem tekið hafa þátt.
Á DesignMatch gefst íslenskum hönnuðum tækifæri á að hitta norræna kaupendur, framleiðendur og seljendur hönnunar í þeim tilgangi að kynna fyrir þeim verk sín. Markmiðið er að skapa íslenskri hönnun brautargengi á einum mikilvægasta markaði Íslands, Norðurlöndunum.
Fulltrúar fyrirtækja sem komu á kaupstefnuna DesignMatch á HönnunarMars 2014 voru Iittala, One Nordic, Norrmann Copenhagen, Wrong for HAY og One Collection. Á undanfarna árum hefur fjöldi samninga verið gerður á milli íslenskra hönnuða og erlendra kaupenda.
Reykjavík Fashion Festival (RFF) var haldið í fimmta sinn á laugardeginum 29. mars, samhliða HönnunarMars og er einn af stærstu viðburðum HönnunarMars. Sjö íslensk vörumerki tóku þátt í RFF í ár: Cintamani, Ella, Farmers Market, JÖR by Guðmundur Jörundsson, Magnea Einarsdóttir, REY og Sigga Maija. Markmið RFF er að markaðssetja og vekja athygli á íslenskri fatahönnun og þeirri þróun og tækifærum sem í henni felast.
Um 50 erlendir blaðamenn komu til landsins á vegum HönnunarMars og RFF og birtast greinar eftir þá í erlendum fjölmiðlum. Þannig nær umfjöllun um HönnunarMars, og um íslenska hönnuði og arkitekta til breiðs lesendahóps. Fulltrúar frá Politiken, Dwell, Frame, Dezeen, Dwell, Newsweek og Form Magasin eru á meðal þeirra blaðamanna sem sóttu hátíðina í ár.
Rúmlega 30.000 íslendingar sækja hátíðina ár hvert (skv. könnun Capacent) og vaxandi fjöldi erlendra gesta kemur til landsins, m.a. vegna séstakra HönnunarMars pakka sem hafa verið þróaðir í samstarfi við Icelandair.
HönnunarMars er orðinn mikilvægt hreyfiafl í íslensku samfélagi, enda er mál manna að aldrei hafi fleiri sótt hátíðina, gæðin séu að aukast og viðskiptalegt mikilvægi hennar orðið mjög mikið fyrir þátttakendur. Í febrúar samþykkti ríkisstjórn nýja hönnunarstefnu fyrir Ísland. Stefnan er sett fram í þeirri trú að hönnun sé einmitt einn af megindrifkröftum aukinnar verðmætasköpunar, meiri lífsgæða og sjálfbærni. Í henni er fullyrt að hönnun snerti öll svið tilveru okkar á sviði stjórnsýslu, atvinnulífs og heimila.
Sjáumst á næsta HönnunarMars!
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.