Uppskrift að afbragðs þjónustu
Í nóvember síðastliðnum fékk undirrituð ásamt tólf öðrum starfsmönnum Advania svokallaða ITIL vottun í þjónustu og rekstri upplýsingatæknilausna.
Í nóvember síðastliðnum fékk undirrituð ásamt tólf öðrum starfsmönnum Advania svokallaða ITIL vottun í þjónustu og rekstri upplýsingatæknilausna.
ITIL aðferðafræðin er margreynd í upplýsingatækni hjá ótal fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum um allan heim. Nú þegar hefur Advania haft mikinn ávinning af því innleiða vinnubrögð og ferla sem byggja á ITIL aðferðafræðinni. Við hófum innleiðingaferilinn í ársbyrjun 2013.
Á sviði umbreytingu þjónustu höfum við innleitt breytingastjórnun (e. Change Management) sem snýst um að gera breytingar og úrbætur með skilvirkum og áreiðanlegum hætti. Markmiðið er að skilgreina og draga úr áhættu sem tengjast breytingum og hafa viðbragðsáætlun til reiðu ef þarf, bæta upplýsingaflæði og auðvelda rekstur eftir að breyting á kerfi eða þjónustu er gerð.
Hvað varðar hönnun þjónustu þá höfum við innleitt ferli um stýringu á þjónustustigi (e. Service Level Management). Hér er markmiðið að veita rétta þjónustu í takt við sameiginlegan skilning aðila á því þjónustustigi sem er í gildi.
Í liðnum umbreyting þjónustu er unnið að innleiðingu á mikilvægu ferli sem á ensku kallast „Service Asset & Configuration Management“ og kortleggur þjónustur og þá undirliggjandi þætti sem styðja við hana. Ávinningurinn af þessu ferli er að allt sem þarf til að veita þjónustu er vandlega skráð og kortlagt sem auðveldar verulega allt utanumhald og vöktun með þeim kerfum sem þjónustan byggir á.
Eins og fram hefur komið hefur innleiðing á ITIL aðferðafræðinni þegar skilað sér í auknu rekstraröryggi og verulega bættu þjónustustigi. Hvergi verður hnikað frá því markmiði okkar að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu. Það er trú mín að ITIL hafi verulega mikið að segja í þeim efnum.
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.