Gervigreindarskýið er hluti af víðtækari stefnu Advania um að auka stafræna getu og upplýsingatækniþjónustu eftir þörfum fyrirtækja og stofnanna og liður í þeirri vegferð að tryggja stafrænt fullveldi Íslands (e: sovereign AI).
Með því að bjóða upp á gervigreindarský ætlar Advania að styðja atvinnulífið á Íslandi enn betur í stafrænu umbreytingarferli og veita aðgang að þeirri reiknigetu sem nauðsynleg er til að knýja fram nýsköpun og skilvirkni með gervigreind.
Samstarfið við NVIDIA, sem er eitt stærsta tæknifyrirtæki heims og leiðtogi í GPU tækni, styrkir stoðir og skuldbindingu Advania til að veita viðskiptavinum sínum háþróaðar lausnir. Linda Malm, Regional Manager Enterprice – Nordics hjá NVIDIA Partner Manager fyrir Norðurlöndin og Bretland hjá NVIDIA, lýsti yfir ánægju með samstarfið og segir það „Við erum spennt fyrir samstarfinu, og þeim framsæknu gervigreindarlausnum sem við kynnum fyrir íslenska markaðinum. Með þeim hjálpum við viðskiptavinum að hámarka afköst og auka velgengni.“
Mikilvægi gervigreindarfullveldis (e. Sovereign AI)
Gervigreindarfullveldi er lykilþáttur í gervigreindarskýinu sem leggur áherslu á mikilvægi þess að þjóðir haldi stjórn á gervigreindarinnviðum, gögnum og tækni. Gervigreindarfullveldi gerir löndum kleift að:
- Viðhalda gervigreindarfullveldi og öryggi: Með því að halda viðkvæmum gögnum innan lögsögu geta lönd og fyrirtæki tryggt öryggi gagna og aukið traust meðal borgara sinna.
- Aðlögun að menningu og tungumáli hvers lands: Gervigreindarfullveldi gerir fyrirtækjum og löndum kleift að þróa gervigreindar módel sem eru sniðin að menningu og samfélagslegum þörfum landsins og varðveita tungumál og menningu.
- Tæknilegt sjálfstæði: Með því að minnka hversu háð lönd og fyrirtæki eru erlendum gervigreindarskýjum, er verið að auka gervigreindarfullveldi landa. Að hafa stjórn á eigin gögnum styður við aukið fullveldi og höfundarrétt.
- Efnahagsleg samkeppnishæfni: Þróun gervigreindarfullveldis getur stuðlað að auknum hagvexti þjóða og samkeppnishæfni á alþjóðlegum gervigreindar vettvangi.
- Þjóðaröryggi: Með því að stjórna þróun og innleiðingu gervigreindar geta lönd sett sínar eigin siðferðislegu leiðbeiningar og reglugerðir til að tryggja samræmi við þjóðarhagsmuni.
Hafsteinn Guðmundsson, framkvæmdastjóri upplýsingatækniþjónustu hjá Advania, segir:
„Við erum mjög spennt fyrir samstarfinu við NVIDIA til að koma á gervigreindarskýi sem þjónustu til Íslands. Þessi þjónusta mun veita fyrirtækjum reiknigetu sem þau þurfa fyrir nýsköpun og til að vera samkeppnishæf á stafrænum tímum. Áherslan á gervigreindarfullveldi tryggir að mikilvæg gögn og tækniframfarir haldist örugg á Íslandi og í takt við okkar menningar- og efnahagslegu markmið.“