Anita Brá nýr forstöðumaður þjónustuupplifunar hjá Advania.
Anita Brá Ingvadóttir hefur verið ráðin í starf forstöðumanns þjónustuupplifunar, sem er nýtt svið innan Advania.
Anita Brá Ingvadóttir hefur verið ráðin í starf forstöðumanns þjónustuupplifunar, sem er nýtt svið innan Advania.
Sem einn af lykilstjórnendum Advania mun hún leiða samstarf innan félagsins til að tryggja að þarfir og ánægja viðskiptavina verði alltaf í forgrunni.
Anita Brá er sálfræðingur að mennt með sérhæfingu í upplifunar- og þjónustuþróun. Hún starfaði áður við sölu- og þjónustustýringu hjá BIOEFFECT og NOVA. Þar að auki hefur Anita starfað sjálfstætt við ráðgjöf í þjónustuupplifun og innleiðingu þjónustumenningar.
Stofnun þjónustuupplifunarsviðs og ráðning Anitu er stórt skref í vegferð Advania að enn betri þjónustu. Markmið félagsins er ávallt að hafa viðskiptavininn í fyrsta sæti og það er gríðarlegur fengur að fá Anitu til að leiða áframhaldandi þróun á upplifun þeirra.
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.