Sigrún Ósk tilnefnd sem fjölbreytnileiðtogi ársins
Sigrún Ósk Jakobsdóttir mannauðsstjóri Advania er tilnefnd til verðlauna á Women in Tech Awards sem afhent verða í Osló í Noregi í kvöld. Sigrún var valin sigurvegari á Íslandi í flokknum fjölbreytnileiðtogi ársins og er því fulltrúi landsins í þessum flokki á verðlaununum.