Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var gestur Viðars Péturs Styrkárssonar í Tæknital.
„Við ætlum að vera með í þessu og helst að vera á undan“
Viðmælandinn í öðrum þætti af Advania hlaðvarpinu Tæknital er Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar. Þar talar hún um gervigreind og stöðu Íslands í þessum málaflokki.
„Hún býður upp á svo ótrúlega stórkostleg tækifæri ef við förum vel með þetta,“ sagði Þorgerður Katrín í viðtalinu. Hún segir mikilvægt að huga vel að því að hafa stjórn og vita hvert við erum að fara þegar kemur að gervigreind. Einnig þurfi að tryggja öryggi gagna.
„Við getum ekki alltaf stólað á að það séu velviljaðir einstaklingar sem eiga þessi stærstu fyrirtæki.“
Íslendingar eru þegar komnir af stað þegar kemur að gervigreind en mögulega þurfi að gefa í.
„Við erum aðeins byrjuð að hlaupa, á eftir þessu, en við ætlum að vera með í þessu og helst á undan. Það er mjög mikið í gangi. Ég er mjög ánægð með að það er verið að skoða hlutina frá mjög breiðu samhengi þegar kemur að gervigreindinni,“ segir Þorgerður Katrín.
Hún segir að ríkisstjórnin þurfi að taka gervigreindina föstum tökum.
„Það er allt á fleygiferð. Við ætlum að taka þátt í ferðalaginu en samt stjórna hvert við erum að fara.
Viðtalið í heild má heyra í spilaranum hér fyrir neðan. Þar talar hún meðal annars um gervigreind í samhengi við öryggismál, regluverkið í Evrópu, siðferðisleg álitamál og margt fleira. Hún svarar því einnig hvernig hugarfarið er gagnvart gervigreindinni innan ráðuneytanna og hvernig hún sjálf nýtir gervigreind í störfum sínum.