Viðtöl við helstu sérfræðinga í gervigreind
Það getur verið snúið að fylgjast með fréttum úr heimi gervigreindar, hraði breytinga er mikill á sama tíma og magn upplýsinga getur verið mjög misvísandi. Annaðhvort er gervigreindin ógn við mannkynið sem mun gera okkur úreld á næstu fimm árum eða hún er það vitlaus að það er bókstaflega ekkert sem hún gerir rétt.
Sannleikurinn er líklega einhverstaðar þarna á milli samt. Með tilkomu ChatGPT byrjaði gervigreindarbólan að vaxa og ég tók fljótt eftir að umræðan snerist um að fá sem flest læk á Linkedin og enginn sem hlustaði á raunvörulegu sérfræðingana.
Þar sem ég starfa hjá Gervigreindarsetri Advania fannst mér tilvalið að kalla til mín sérfræðingana sem þekkja málaflokkinn best. Það var í því árferði sem hugmynd um hlaðvarpsviðtöl kviknaði, þar sem markmiðið væri að fræða almenning um raunvöruleika gervigreindar. Í dag fór af stað Advania hlaðvarpið Tæknital, þar sem talað verður um tækni á mannamáli.
Ég sé um þáttastjórn í fyrstu þáttunum og þar verður áherslan á gervigreind. Í þessum þáttum fæ ég til mín góða gesti mjög fjölbreyttan bakgrunn til að fá upp skemmtileg og örðuvísi sjónarhorn á gervigreind og vonandi að læra eitthvað nýtt í leiðinni.
Ég hef nú þegar tekið upp nokkra þætti þar sem sérfræðingar, leiðtogar í atvinnulífinu, pólitíkusar, áhugamenn, frumkvöðlar, leikarar og fleiri hafa komið í spjall. Í hverjum þætti kynnumst við fólkinu á bakvið manneskjuna, heyrum þeirra nálgun á gervigreind og hvernig þau sjá framtíðina fyrir sér.
Tæknital verður aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Fyrsti þátturinn minn er viðtal við framtíðarfræðinginn Berg Ebba Benediktsson. Njótið og leggið vel við hlustir.